Javier Monsalve, ávallt þekktur sem Javi, lést í banaslysi á Þrengslavegi sunnudagskvöldið 26. júlí síðastliðinn. Javi var frá Kólumbíu en flutti ungur með fjölskyldu sinni til Spánar.
Söfnun hefur verið sett af stað til að Javi til Spánar. Berglind Sif Viðarsdóttir, vinkona Javi til fimmtán ára, heldur utan um söfnunina. Javi hafði safnað fyrir ferðinni til Íslands í þrjú ár og hafði verið á landinu í þrjár vikur þegar hann lést.
„Javi var með stórt og fallegt hjarta, vildi allt fyrir alla gera og fékk alla til að brosa, allir elskuðu hann,“ segir Berglind Sif í færslu á Facebook.
„Hann hafði bara tvo að á landinu og voru það ég og maðurinn minn. Til að létta undir móður hans Javi á mjög svo erfiðum tímum tókum við ákvörðun um að losa hans fjölskyldu undan flutningskostnaði, og ætlum við að greiða 1.100.000 til að koma honum til Spánar og láta jarða hann þar.“
Berglind óskar eftir að þeir sem hafa áhuga á að aðstoða leggi inn á reikning ;
Reikningsnúmer: 0511-14-067797, kennitala: 040594-2139