Tveir vopnaðir menn voru handteknir í miðborg Reykjavíkur í nótt. Einn var með hamar og annar með exi.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Sá sem tilkynnti um mennina til lögreglu sagði þá vera ógnandi og árásargjarna. Voru mennirnir handteknir og færðir í lögreglustöðina á Hverfisgötu. Lagt var hald á vopn þeirra.
Í dagbók lögreglu greinir einnig frá því að tilkynnt var um þjófnað á hörðum diski á hóteli í miðborginni. Þrír eru grunaðir um verknaðinn.