Fréttir

Manndráp á Kársnesi: Sér loks fyrir endann á biðinni

Mynd
Frá aðgerðum tæknideildar lögreglu á vettvangi 28. nóvember 2025.

Réttarhöld í máli sem varðar manndráp á Kársnesi þann 28. nóvember 2025 hafa enn ekki verið haldin. Ákæra í málinu var birt snemma í apríl á þessu ári. 

Málið varðar lát rúmlega fertugs Portúgala á heimili sínu við Skjólbraut á Kárnesi í Kópavogi. Hinn ákærði í málinu er grískur maður sem heitir Georgios Ntentes, fæddur árið 1995. Georgios er ákærður fyrir að hafa veist með ofbeldi að Portúgalanum og svipt hann lífi með því að stinga hann þremur stungum í kviðinn með hníf, skorið hann og stungið nokkrum sinnum með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann eða þrýst á framanverðan háls hans, með þeim afleiðingum að brotaþoli varð fyrir umfangsmiklu blóðtapi sem leiddi til dauða hans.

Sjá einnig: Georgios ákærður fyrir morð á Kársnesi

Georgious hefur ávallt neitað sök í málinu. Gerðar eru miskabótakröfur á hendur honum fyrir hönd barna og annarra aðstandenda hins látna. Nema bótakröfurnar samtals tæplega 25 milljónum króna. 

Þrátt fyrir ákæru og staðfestar upplýsingar um að mennirnir tveir hafi þekkst hefur málið verið sveipað leynd því ekkert hefur komið fram um mögulegar ástæður fyrir meintum glæp.

Upphaflega var aðalmeðferð sett á dagskrá snemma í maí en henni var frestað. Ástæðan fyrir því er sú að beðið var niðurstöðu tveggja erlendra matsmanna á tilteknum sönnunargögnum. 

DV hafði samband við Karl Vigni Vilbergsson, aðstoðarhéraðssaksóknara. Segir hann að enn sé beðið eftir niðustöðum matsmannanna. Hins vegar sér fyrir endann á þeirri bið: 

„Við stefnum á að vera með aðalmeðferð um miðjan september.“