Fréttir

Kolbrún segir að stjórnvöld þurfi að fara yfir vinnubrögð hjá Fæðingarorlofssjóði

Mynd

Töluvert hefur verið fjallað í sumar um erfiðleika nýbakaðra foreldra í samskiptum við Fæðingarorlofssjóð. 

Sjá einnig: Von hefur vaknað hjá tvíburaforeldrum sem synjað var um fæðingarorlof

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingkona Flokks fólksins, fer yfir þetta í aðsendri grein á Vísir.is í dag. 

„Undanfarnar vikur hafa fjölmargir foreldrar stigið fram og lýst reynslu sinni af samskiptum við Fæðingarorlofssjóð. Frásagnirnar eru um margt keimlíkar; löng bið, óljós svör og sú upplifun að þurfa ítrekað að sanna rétt sem foreldrar töldu skýran. Á sama tíma glíma fjölskyldur við fjárhagsáhyggjur á tímabili sem á fyrst og fremst að einkennast af öryggi og samveru með nýfæddu barni.“

Kolbrún bendir á að tilgangurinn með fæðingarorlofi sé að gefa foreldrum svigrúm til að sinna barni sínu án mikillar óvissu um afkomu. Í þessu samhengi skipti framkvæmd laganna ekki síður máli en lögin sjálf. Taka þurfi ábendingar um misbrest á framkvæmdinni alvarlega: 

„Þetta er ekki ný umræða. Umboðsmaður Alþingis hefur áður bent á að Fæðingarorlofssjóði beri að gæta betur að leiðbeiningarskyldu sinni gagnvart þeim sem til hans leita. Ábendingar um brotalamir eiga að vera tilefni til að fara reglulega yfir verklag og kanna hvort framkvæmdin þjóni þeim tilgangi sem löggjafinn lagði upp með.

Þetta á sérstaklega við þegar mál verða flóknari. Til að mynda vegna veikinda eða annarra sérstakra aðstæðna.“

Ekki bent á sökudólga

Kolbrún segir að starfsfólk Fæðingarorlofssjóðs sinni mikilvægu og krefjandi starfi, umræðan eigi ekki að snúast um leit að sökudólgum. En þar sem sambærilegar kvartanir berist ítrekað sé eðlilegt að stjórnvöld leiti leiða til að bæta þjónustuna og gera hana skilvirkari, bæta upplýsingagjöf og stytta afgreiðslutíma. Hún telur mikilvægt að farið verði yfir vinnubrögð hjá sjóðnum í ljósi umræðunnar sem átt hefur sér stað. 

Sjá nánar hér