Icelandair þarf að greiða tveimur einstaklingum bætur vegna töluverðrar seinkunar sem varð á flugi sem þeir áttu bókað með félaginu. Seinkunin var tilkomin vegna tösku sem hafði verið innrituð í flugið og komið fyrir í töskurými en sá einstaklingur sem innritaði töskuna mætti ekki að brottfararhliðinu og fannst ekki.
Þetta kemur fram í úrskurði Samgöngustofu um bótakröfu tvímenninganna. Þeir áttu bókað far með flugi Icelandair 3. janúar síðastliðinn frá Toronto í Kanada til Kaupmannahafnar með millilendingu á Keflavíkurflugvelli. Lending í Kaupmannahöfn var um hádegisbilið að staðartíma, þann 5. janúar, rúmum sólarhring eftir áætlaðan komutíma.
Tvímenningarnir fóru fram á staðlaðar skaðabætur.
Flugvélin frá Toronto átti að fara í loftið til Keflavíkur klukkan 19:40 að staðartíma 3. janúar og lenda í Keflavík morgunin eftir klukkan 6:25 að staðartíma. Tvímenningarnir áttu síðan bókað flug þaðan til Kaupmannahafnar sem átti að fara í loftið 70 mínútum síðar.
Hins vegar varð 110 mínútna töf á brottför frá Toronto vegna öryggisráðstafana sem gripið var til eftir að taska var innrituð í flugið en aðilinn sem innritaði hana mætti ekki að brottfararhliðinu. Fjarlægja þurfti þá töskuna úr flugvélinnni. Þar af leiðandi misstu tvímenningarnir af tengifluginu til Kaupmannahafnar og komust ekki þangað fyrr en sólarhring síðar með fyrsta flugi sem laus sæti voru í.
Borga
Í svari Icelandair til Samgöngustofu kom fram að gripið hafi verið til allra mögulegra ráðstafana til að finna aðilann sem innritaði töskuna en án árangurs. Taskan hafi verið innarlega í töskurými flugvélarinnar og því tekið tíma að ná til hennar.
Icelandair sagði að tekist hefði að vinna töfina upp að einhverju leyti á leiðinni frá Toronto til Keflavíkurflugvallar. Lending hafi verið 80 mínútum eftir áætlaðan komutíma, 10 mínútum eftir að tengiflugið til Kaupmannahafnar var farið í loftið.
Icelandair hafnaði bótakröfunni og vísaði til þess að félaginu hafi ekki verið stætt á öðru en að eyða tíma í að finna töskuna og fjarlægja hana enda hefði það verið skylda þess samkvæmt alþjóðlegum öryggisreglum sem giltu jú bæði í Evrópu og Kanada. Um væri að ræða aðstæður sem félagið hefði ekki haft stjórn á og þar með bæri því ekki skylda til að greiða bætur vegna tafarinnar. Það gæti ekki talist fyrirsjáanlegt að farþegi innritaði tösku í flug en mætti svo ekki að brottfararhliði. Þar af leiðandi bæri félaginu ekki skylda samkvæmt Evrópureglugerð til að greiða umræddar bætur. Starfsfólk hefði þar að auki gert allt sem mögulegt var til að leysa úr vandanum með því að finna þann sem innritaði töskuna en án árangurs og þannig hefði félagið uppfyllt allar skyldur sínar.
Tvímenningarnir lýstu sig ósammála því að ekki hafi verið um fyrirsjáanlegar aðstæður að ræða. Það væri hluti af hefðbundinni starfsemi flugfélaga að þurfa að takast á við það verkefni að fjarlægja innritaðan farangur úr töskurými flugvéla. Þar af leiðandi hefði ekki verið um óviðráðanlegar aðstæður að ræða og þess vegna væri Icelandair bótaskylt samkvæmt ákvæðum Evrópureglugerðar um bætur til flugfarþega.
Samgöngustofa tekur undir með tvímenningunum um að ekki hafi verið um óviðráðanlegar aðstæður að ræða. Seinkun flugs sem stafi af því að finna þurfi og taka út farangur farþega sem mæti ekki í flugið sé bein afleiðing af öryggis- og rekstrarferlum flugrekanda. Slíkar aðgerðir teljist fyrirsjáanlegur og eðlilegur þáttur í flugrekstri og falli innan ábyrgðar- og áhættusviðs flugrekanda. Þótt sú staðreynd að farþegi mæti ekki í flug sé ekki á valdi flugrekanda teljist slíkt atvik engu að síður hluti af eðlilegri starfsemi hans. Skilyrði þess að atvik sé ekki hluti af eðlilegri starfsemi flugrekanda sé því ekki uppfyllt í málinu.
Icelandair þarf því að borga tvímenningunum 600 evrur (85.200 íslenskar krónur) í bætur.