Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 2. september, á grundvelli almannahagsmuna, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna rannsóknar á andláti karlmanns um sjötugt í heimahúsi í Kópavogi um þar síðustu helgi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn sem er í haldi var handtekinn í síðustu viku og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. ágúst. Gæsluvarðhaldið hefur nú verið framlengt.
Ekki hefur verið greint frá málinu fyrr en í tilkynningu lögreglu segir að ekki verði veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.