Fimm vikur eru til þingkosninga í Svíþjóð og þar í landi virðist kominn upp mikill kosningaskjálfti. Töluvert uppnám hefur orðið í stjórnmálalífinu þar í landi eftir að þingmaður úr röðum Svíþjóðardemókrata líkti stjórnmálaritstjóra eins af stærri fjölmiðlum landsins og leiðtoga stærsta stjórnarandstöðuflokksins við mesta föðurlandssvikara í sögu Norðurlanda.
Richard Jomshof er þingmaður Svíþjóðardemókrata og var frá 2022-2025 formaður dómsmálanefndar sænska þingsins. Í færslu á X kallaði hann Anders Lindberg stjórnmálaritstjóra Aftonbladet kvisling. Þetta gerði þingmaðurinn eftir að Lindberg ræddi opinberlega um þann möguleika að Jomshof gæti orðið dómsmálaráðherra eftir kosningarnar og gagnrýndi málflutning þingmannsins um kóranbrennur.
Með þessum orðum er þingmaðurinn eins og margir vita að líkja blaðamanninum við Norðmanninn Vidkun Quisling sem leiddi leppstjórn norskra nasista eftir innrás Þjóðverja í Noreg árið 1940. Svo mikil voru svik Quisling í garð föðurlands síns að þetta orð kvislingur varð til yfir slíkt athæfi. Vill þingmaðurinn þá bersýnilega meina að í gagnrýni Lindberg hafi falist föðurlandssvik gagnvart Svíþjóð og hann gangi erinda íslamista.
Annar kvislingur
Í umfjöllun Aftonbladet segir að í kjölfarið hafi stjórnmálamenn af bæði vinsti og hægri væng stjórnmálanna gagnrýnt Jomshof. Magdalena Anderson leiðtogi Jafnaðarmanna, sem fara fyrir vinstri blokkinni og þar með stjórnarandstöðunni á sænska þinginu, og forsætisráðherraefni vinstri flokkanna sagði framferði Jomshof ósænskt. Ebba Busch viðskipta- og orkumálaráðherra og leiðtogi Kristilegra demókrata fór fram á það að menn gættu hófs í opinberri umræðu.
Jomshof er þegar þessi orð eru rituð ekkert á þeim buxunum að gefa eftir og kallaði Anderson einnig kvisling og sagði hana eins og Lindberg ganga erinda íslamista sem ógnuðu öryggi Svíþjóðar.
Lindberg er afar ósáttur við ummæli þingmannsins og segir það ótækt að stjórnmálamenn saki blaðamenn um föðurlandssvik. Hann bendir á að það sé hlutverk fjölmiðla að halda uppi gagnrýninni umfjöllun um verk valdhafa og það séu ekki landráð að rýna í verk stjórnmálaflokka og stjórnvalda.
Karin Schmidt ritstjóri Aftonbladet segir framferði Jomshof viðbjóðslegt og minnir á að frjáls fjölmiðlun sé nauðsynleg í landi sem vilji kalla sig lýðræðisríki.
Ótækt
Ulf Kristersson forsætisráðherra og leiðtogi Moderaterna sem sjálfur hefur eldað grátt silfur við Aftonbladet segir hegðun Jomshof ósæmilega, í viðtali við miðilinn.
Forsætisráðherrann segir að beitt pólitísk umræða verði að geta farið fram án þess að fólk leggist svo lágt að fara út í persónulegar árásir hvert á annað. Hann sagði eins og Jomshof gerði að Lindberg hefði sjálfur notað sams konar orðfæri um aðra stjórnmálamenn en að slíkt skaðaði hina pólitísku umræðu.
Kristersson sagði við Aftonbladet að hann ætlaði sér að ræða um hegðun Jomshof við leiðtoga Svíþjóðardemókrata Jimmie Åkesson en að svo yrði hver flokkur að bera ábyrgð á sínu fólki.
Åkesson og flokkurinn höfðu hins vegar ekkert við orðfæri þingmannsins að athuga og sögðu að Svíþjóðardemókratar hefðu í gegnum tíðina verið kallaðir öllum illum nöfnum og það væri ekkert að því að svara fyrir sig. Þessu var komið á framfæri á samfélagsmiðlasíðum flokksins sjálfs og leiðtogans.
Svíþjóðardemókratar eru hægri popúlistaflokkur og voru lengst af, eftir að ná kjöri á þingi, utangarðsmenn í sænskum stjórnmálum en á þessu kjörtímabili hafa þeir varið minnihlutastjórn hinna þriggja hægri flokkanna á þingi vantrausti, gegn því að stefnumál flokksins fái framgöngu, meðal annars hert innflytjendalöggjöf. Flokkurinn hefur hins vegar ljáð máls á því að vilji hans standi nú til þess að taka sæti við ríkisstjórnarborðið og að flokksmenn setjist í ráðherrastóla í fyrsta sinn. Aðrir flokkar á hægri vægnum hafa tekið undir þetta.
Vinstri flokkarnir hafa hins vegar nýtt sér þetta í sinni kosningabaráttu og sagt að eina leiðin til að hindra að Svíþjóðardemókratar fái sæti við ríkisstjórnarborðið sé að kjósa til vinstri. Vinstri blokkinn hefur verið með forystu í skoðanakönnunum í töluverðan tíma og eins og staðan er núna stefnir því í stjórnarskipti í Svíþjóð eftir kosningarnar í september. Hafa ber þó í huga að vika er langur tími í pólitík hvað þá fimm vikur.
Lindberg er mjög ósáttur við orð þingmannsins