Veðurfræðingurinn Sigurður Ragnarsson, Siggi Stormur, segir að langtímaspá hans fyrir Norðausturland um verslunarmannahelgina standi, það sé ótækt að sveigja veðurspám til að þóknast skipuleggjendum viðburða.
Skipuleggjendur útihátíða á Norðurlandi voru óhressir með spá Sigga, greindi Vísir frá því að þeir hafi helst gagnrýnt spá Sigga sem sagði að sólin yrði helst um sunnan- og vestanvert landið.
„Auðvitað, þegar maður leggur í það að búa til veðurspá þá getur maður ómögulega verið að hugsa um einhverja peninga norður í landi eða einhverjar hátíðir hér og þar. Maður fer ekki að sveigja veðurspá til þess að þóknast, eða gera þig eitthvað betri, þeim sem er að reka einhverja hátíð,“ sagði Siggi í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
„Annars verður maður ótrúverðugur, ef maður fer að hnika til spám, það kemur ekki til greina. Eins og í þessu tilviki þá verð ég að segja að mánudagsspáin hljóðaði upp á að það færi í norðanátt, það yrði úrkoma fyrir norðan og það yrði svalt fyrir norðan, vindurinn svo svolítið á reiki með sex daga fyrirvara. Þegar öllu er á botninn hvolft þá stóðst þetta allt nema það að úrkoman var minni þegar leið á laugardaginn.“
Siggi segir að spáin hafi staðist í öllum meginatriðum:
„Ég nefndi aldrei Akureyri. Það voru skil sem lágu yfir norðausturströndina og frá þeim var væta. Mesta úrkoman um helgina var fyrir norðan, á Norðausturlandi.“
Örfáir dropar
Þáttastjórnandinn Sigmar Vilhjálmsson, Simmi Vill, gekk á Sigga.
„Verandi á Akureyri, það var engin rigning, það voru örfáir dropar í mjög skamma stund,“ sagði Simmi.
„Verslunarmannahelgin er mjög mikilvæg helgi fyrir marga staði úti á landi og þú værir ekki fenginn í að gefa út spá nema af því að fólk vill vita hvert á að fara. Ábyrgð þín sem slík, þú gerir þér grein fyrir því að þetta skiptir máli. Það skiptir máli hvernig hlutirnir eru orðaðir.“
Siggi tók undir það en spurði svo Simma á móti:
„Það er alveg rétt hjá þér, það skiptir máli hvernig orðalagið er. Í þessu tilviki, ef að spárnar hefðu verið að sýna þvers og kruss niðurstöður, það eru reiknaðar spár, bæði bandaríska veðurstofan og síðan er evrópska reiknimiðstöðin, þetta eru öflugustu veðurreiknimiðstöðvar í heimi. Og þegar þær eru farnar að sýna lægð fyrir norðaustanland þá þorir maður að gefa betur í en ella. Ertu að segja að ég hefði ekki átt að spá rigningu fyrir norðan?“
Simmi dró í land: „Nei, ég er ekki að segja það. Þetta er meira orðalagið. Segja að rigningarsvæðin verði fyrir austan.“
Heimir Karlsson spurði þá hvort hann upplifði að verið sé að skjóta sendiboðann. Siggi svaraði: „Mér finnst það þannig já. Ég skil ekki alveg hvað ég hefði átt að segja annað,“ segir hann.
„Það er miklu auðveldara að sitja í grasinu daginn sem veðurspáin átti að gilda, sem var gerð fyrir sex dögum.“