Fréttir

MAST hótaði að loka hjá Sólhestum

Mynd

Matvælastofnun hótaði að stöðva starfsemi hestaleigunnar Sólhesta fyrr á þessu ári. Sólhestar eru með starfsemi í Reykjavík og Reykjadal.

RÚV greinir frá þessu. 

Segir að í erindi MAST til Sólhesta komi fram að alvarleg frávik hafi verið í meðferð dýranna sem hafi kallað á tafarlausar úrbætur. Hins vegar var fallið frá því að stöðvar starfsemina eftir að úrbætur voru gerðar. Segir jafnframt að eftirlit með hestaleigunni verði aukið í framtíðinni. 

Brot eða frávik Sólhelsta eru tíunduð í skoðunarskýrslum MAST en einkum voru gerðar athugasemdir við slæmt holdafar hestanna sem þóttu margir allt of horaðir. Einnig þótti sérlega ámælisvert að hross voru notuð í útreiðartúra þó að notkun þeirra hefði verið bönnuð sama dag. 

Sex alvarleg atvik voru tilgreind sem vörðuðu t.d. vanfóðrun, vöðvarýrnun hrossa, og að hófar væru aflagaðir og brotnir.

Stöðvun boðuð en síðan fallið frá henni

Stöðvun Sólhesta var boðuð 8. apríl  en lögmaður fyrirtækisins sendi MAST andmælabréf. Voru skoðunarskýrslur MAST sagðar vera ófullnægjandi og óáreiðanlegar og að MAST hafi ekki verið nógu leiðbeinandi varðandi úrræði. Sólhestar hafi gripið til umfangsmikilla úrbóta og ráðstafana til að mæta kröfum stofnunarinnar auk þess að afla utanaðkomandi sérfræðiálita. Einnig segir að hross hafi verið tekin úr notkun þegar þess var krafist. 

Einnig var greint frá því að sérfræðingurinn Gústaf Loftsson hefið verið ráðinn til að tryggja að starfsemin uppfylli kröfur dýravelferðarlaga.

MAST sendi síðan lögmanninum bréf þann 10. apríl þar sem segir að fallið hafi verið frá stöðvun starfseminnar vegna úrbóta sem gerðar hafi verið á starfseminni og vegna ráðningar sérfræðingsins. 

Sjá nánar á vef RÚV.