Fréttir

Lögreglan á Akureyri leitar að heilabilaðri konu

Mynd
Lögreglustöðin á Akureyri. Mynd: Pjetur Sigurðsson

Lögreglan á Akureyri hefur hafið leit að 90 ára gamalli konu með heilabilun. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 

Konan fór út af dvalarheimilinu Hlíð, við Austurbyggð, um kl. 20 í kvöld. 

„Hún er um 160 cm á hæð og meðalbyggð, með slétt grátt hár og síðan topp. Hún er talin klædd í hvíta síða lopapeysu með bláu munstri að framan, gráar buxur og mögulega í inniskó. Þeir sem telja sig hafa séð til ferða konunnar eru vinsamlegast beðnir um að hringja í 112,“ segir í tilkynningunni. 

Uppfært kl. 20:20: 

Konan er fundin heil á húfi.