Fréttir

Lögmaður segir fráleitt að leikfangabyssur geti talist eftirlíking af skotvopnum

Mynd
Sveinn Andri Sveinsson

Í frétt RÚV í gærkvöld er því haldið fram að menn sem sagðir eru hafa ógnað fólki með leikfangabyssum á Akureyri um verslunarmannahelgina verði mögulega ákærðir fyrir vopnalagabrot. Er þar bent á að samkvæmt vopnalögum gildi ákvæði þeirra laga einnig um eftirlíkingar af vopnum (sjá 2. gr. h-lið). Þar sem sama gildi um meðferð eftirlíkinga af byssum og raunveruleg skotvopn þá gildi einnig um þær að varsla þeirra krefjist byssuleyfis, þær þurfi að skrá og þær skuli geyma í læstri hirslu. 

Fimm menn á aldrinum 18 til 20 ára voru handteknir á Akureyri um helgina eftir að þeir höfðu ógnað fólki með leikfangabyssum. Hefur málið vakið mikla umræðu en lögreglan naut aðstoðar sérsveitar Ríkislögreglustjóra við aðgerðina. Mennirnir fimm eru búsettir hér á landi en eru af erlendum uppruna. 

DV leitaði álits Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns sem telur þessa túlkun vera fráleita, þ.e.a.s að leikfangabyssa geti talist eftirlíking af skotvopni í skilningi laganna. 

„Auðvitað ekki,“ var svar hans við þeirri spurningu. 

„Leikföng eru leikföng. Leikfangabyssur sem seldar eru í leikfangaverslunum geta aldrei talist vera eftirlíking sem teljist vera brot á vopnalögum.“

Sveinn Andri telur raunar að það sé auðséð hverjum manni að leikfangabyssa er ekki vopn: „Þar fyrir utan getur hvert mannsbarn séð að leikfangið er augljóslega ekki vopn, ekki frekar en Star Wars geislasverð.“