Fréttir

Ekki næst í þjófa sem dæmdir voru fyrir að stela skartgripum fyrir milljónir af heimili í Hafnarfirði

Mynd

Tveir litháeskir karlmenn á fertugsaldri voru þann 14. júlí dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness fyrir innbrot og þjófnað á heimili í Hafnarfirði þann 27. febrúar árið 2024. 

Mennirnir brutust inn í íbúð á fyrstu hæð í götu í Hafnarfirði, með því að spenna upp svaladyr. Stálu þeir skartgripum úr íbúðinni að verðmæti rúmlega tvær og hálf milljón króna.

Tvímenningarnir voru ekki viðstaddir réttarhöldin og var kveðinn upp dómur í fjarveru þeirra. Þeir voru báðir dæmdir í þriggja mánaða fangelsi. Dómurinn var skilorðsbundinn vegna þess að tafir urðu á rannsókn málsins. 

Þeir voru jafnframt dæmdir til að greiða brotaþola andvirði skartgripanna í bætur, 2.535.000 kr. með vöxtum. Vandséð er að sú krafa fáist greidd því ekki hefur tekist að finna mennina til að birta þeim dóminn og raunar tókst ekki að birta þeim ákæru heldur á sínum tíma. Dómurinn er því birtur í Lögbirtingablaðinu í dag.