Þó að Þjóðhátíð í Eyjum þyki hafa í heild gengið vel fyrir sig hefur lögregla haft í nógu að snúast. Í tilkynningu frá Lögreglunni í Vestmannaeyjum í dag kemur fram að í gær var sparkað í lögreglumann við skyldustörf og sjúkraflutningamaður var sleginn.
Í tilkynningunni segir:
„Seinasti dagur þjóðhátíðar fór fram í blíðskaparveðri og hafði lögregla í ýmis horn að líta þegar leið á nóttina og gista fimm fangageymslur. Tilkynntar voru tvær líkamsárásir og upp komu fimm fíkniefnamál. Þá var sparkað í lögreglumann við skyldustörf og sjúkraflutningamaður sleginn. Hátíðargestir eru byrjaðir að týnast frá Vestmannaeyjum og viljum við þakka þeim komuna og óskum þeim góðra ferðar til síns heima.“