Fréttir

Handtekinn með gríðarlegt magn af þýfi

Mynd
Lögreglustöðin við Hverfisgötu. Mynd: Maggi gnúsari.

Maður var handtekinn á svæði lögreglustöðvar 1 (Austurbær-Miðbær-Vesturbær-Seltjarnarnes) fyrir innbrot í bíl. Maðurinn var mjög illa haldinn af fíkniefnaneyslu og var hann fluttur á lögreglustöð ásamt gríðarlega miklu magni af þýfi af ýmsu tagi. Hann var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins og var þýfið allt saman haldlagt og skráð hjá lögreglu. 

Frá þessu segir í dagbók lögreglu. Einnig greinir frá því að maður hafi verið handtekinn í miðborginni fyrir að sparka í lögreglumann. Annar maður var handtekinn, grunaður um að ráðast á tvo dyraverði í miðborginni. Var hann með skurð á enni eftir átökin og fékk aðstoð sjúkraliðs á lögreglustöð. 

Tilkynnt var um grunsamlegar mannaverðir í Vogahverfi, haft var upp á þeim mönnum og teknar niður upplýsingar um þá. 

Samkvæmt dagbókinni gistu fjórir fangageymslu lögreglu í nótt.