Nokkur andmæli hafa verið gerð við drög að frumvarpi til laga um nikótín- og tóbaksvarnir. Frumvarpið gengur út á hertari reglur um nikótínvörur til að mynda rafrettur og nikótínpúða. Í athugasemdum er meðal annars því andmælt að til standi að veita heilbrigðisráðherra vald til að banna bragðbætta nikótínpúða. Vilja þeir sem skilað hafa inn umsögnum meina að í frumvarpsdrögunum sé gengið of langt við að skerða valfrelsi fullorðins fólks.
Frumvarpsdrögin hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Í samantekt á efni frumvarpsins segir neðal annars að í því sé lögð til sameiginleg löggjöf um tóbaks- og nikótínvörur, auk tengdra vara. Ástæðan sé að bæði tóbaksvörur og nikótínvörur séu ávanabindandi og skaðlegar heilsu og eigi því sambærileg rök við um báða þessa vöruflokka, sem og aðrar þær vörur sem hér um ræði, þar á meðal jurtavörur til reykinga.
Bragð
Segir enn fremur að í frumvarpinu sé lagt til að ráðherra heilbrigðismála verið falin heimild til að takmarka sölu nikótínvara sem innihaldi bragðefni, einkum þeirra sem kunni að höfða til barna. Í lögum um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur sé nú þegar að finna slíka heimild hvað varði rafrettur. Þá hafi þegar verið lagt á bann við tóbaksvörum með einkennandi bragði og taki bannið gildi 11. júní 2028.
Lagt sé til að sömu reglur gildi um notkun sígaretta og rafretta, svo og annarra tengdra vara. Þá sé lagt til að fjarsala á nikótínvörum og jurtavörum til reykinga yfir landamæri verði óheimil með sama hætti og á tóbaksvörum, takmarka megi heimild til heimsendingar og netsölu innanlands á vörum samkvæmt frumvarpinu, framleiðsla slíkra vara verði leyfisskyld og söluaðilum verði skylt að spyrja kaupendur um skilríki. Í frumvarpinu sé einnig skerpt á reglum um viðurlög.
Umbúðir
Segir einnig að meðal annars að gert sé ráð fyrir skyldu til notkunar einsleitra umbúða um tóbaksvörur. Að öðru leyti verði umbúðir um vörur samkvæmt lögunum að fullnægja ströngum kröfum, þar á meðal um viðvörunarmyndir og viðvörunartexta. Jafnframt sé lagt bann við umbúðum með texta eða myndmáli sem geti höfðað sérstaklega til barna eða ungmenna, m.a. með myndskreytingum eða slagorðum.
Fullorðinn
Í þeim umsögnum sem sendar hafa verið inn í samráðsgáttina kemur fram margvísleg gagnrýni á efni frumvarpsins og það sagt ganga of lagt við að skerða frelsi þeirra fullorðnu einstaklinga sem vilji neyta niktótívara eins og t.d. nikótínpúða og rafretta. Það atriði sem einna oftast kemur fyrir er áform um að ráðherra geti bannað sölu á bragðbættum nikótínvörum:
„Ég tel að þau ákvæði frumvarpsins sem snúa að bragðbönnum og takmörkunum á innflutningi nikótínpúða til eigin nota séu óásættanleg og gangi mun lengra en eðlilegt getur talist í frjálsu lýðræðissamfélagi. Ég er fullorðinn einstaklingur sem er fullfær um að taka upplýstar ákvarðanir um eigin lífsstíl. Það á ekki að vera hlutverk ríkisins að ákveða hvaða bragð af nikótínpúðum ég má nota eða hvort ég megi flytja inn löglega framleidda vöru til eigin nota.“
Frelsi
Ungliðahreyfing Viðreisnar, Uppreisn, gagnrýnir fjölda atriða í frumvarpinu í sinni umsögn:
„Röksemdin um að bann við ákveðnum bragðtegundum sé ætlað að vernda börn er að mati Uppreisnar yfirskin. Með sömu rökum mætti jafnframt banna ýmsar aðrar neysluvörur sem höfða til ungs fólks, svo sem sykrað morgunkorn, gosdrykki eða áfenga drykki á borð við Breezer. Ljóst er að raunverulegt markmið frumvarpsins er að takmarka valfrelsi einstaklinga og draga úr atvinnufrelsi.“
Leggst Uppreisn alfarið gegn frumvarpinu og hvetur til þess að það sé endurskoðað.
Í fleiri umsögnum er gerð sérstök athugasemd við ákvæðin um nikótínvörur með bragði:
„Ég mótmæli því eins harkalega og ég mögulega get að lög eigi að banna fullorðnum einstaklingum aðgang að nikotínvörum með bragðefni. Ég er einn fjölda fullorðinna einstaklinga sem hefur hætt neyslu tóbaks með aðtsoð bragðbættra nikotínvara. Það hlýtur að lyggja augum uppi að bragðtegundir sem höfða til fullorðinna höfða líka til barna, ég hef ekki séð neinar tillögur um að banna áfengi með nammibragði.“
Börn
Í einni umsögn er því fagnað að ætlunin sé að sporna við neyslu barna á nikótínvörum en viðkomandi telur of langt gengið að reyna að hamla neyslu fullorðinna á þessum vörum:
„Að mínu mati beinist frumvarpið að röngum aðilum. Í stað þess að beina aðgerðum af fullum þunga að þeim sem brjóta lög með því að selja eða útvega ólögráða einstaklingum nikótínvörur eru lagðar auknar byrðar á fullorðið fólk og löglega rekstraraðila sem fara eftir gildandi lögum og reglum.“
Í einni umsögn er frumvarpinu þó fagnað en í annarri er því lýst yfir að það sé algjör óþarfi að setja sérstök lög sem beinist að nikótínvörum fremur eigi að fagna þeim sem valkosti við vörur sem innihaldi einnig tóbak eins og t.d. sígarettur:
„Yfirvöld ættu að fagna því að tóbakslausar nikótínvörur séu orðnar að góðum valkosti við aðrar tegundir nikótínvarnings. Nikótín sem efni eitt og sér er heldur ekki slæmt eins og ótal rannsóknir sýna fram á. Það hefur þann ókost helstan að vera ávanabindandi, eins og koffín og Pepsi Max getur verið fyrir suma, en án þess að einhverjum verði meint af. Að setja þessi lög mun engu skila nema kostnaði, verðbólgu og svartamarkaðsbraski. Sé það markmiðið þá kemur það í sjálfu sér ekki á óvart.“