Fréttir

Sigríður um flóttamannainnrásina á Spáni: Vandamálinu verði dreift um alla Evrópu

Mynd
Mynd frá Ceuta: Getty. Mynd af Sigríði: Morgunblaðið.

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir að full ástæða sé fyrir Schengen-ríkin að taka upp tímabundið eftirlit með farþegum frá Spáni. Tilefnið er tugþúsunda innrás flóttamanna frá Marokkó yfir til Spánar í gegnum sjálfsstjórnarborgina Ceuta. 

Sigríður fer yfir málið í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. 

Yfir 60 þúsund flótta- og förumenn hafa komið frá Marokko til Ceuta í vikunni en nokkur hluti af þeim hafa raunar snúið til baka. Stjórnvöld á Ítalíu og Finnlandi vilja vísa Spáni úr Schengen vegna málsins. Aðeins um 85 þúsund búa í Ceuta og skyndileg koma tug þúsunda Marokkómanna setti mikinn þrýsting á innviði borgarinnar og stefndi öryggi íbúa í hættu. 

Sigríður segir í grein sinni að dómur sem féll á Spáni 29. júní, tómlæti spænskra yfirvalda gagnvart landamæragæslu og sú ákvörðun Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, að veita hálfri milljón ólöglegra innflytjenda dvalar- og atvinnuleyfi í vor, séu ástæðurnar fyrir neyðarástandinu í Ceuta núna. Ábyrgð forsætisráðherrans sé mikil: 

„Árið 2021 varð Ceuta fyrir sambærilegri innrás þegar um 9.000 manns stigu þar á land. Flestir voru þá sendir til baka án málsmeðferðar. Það olli að sjálfsögðu nokkurri geðshræringu á Evrópuþinginu. Hinn 29. júní sl. féll dómur á Spáni sem kveður á um að þótt senda megi til baka umyrðalaust fólk sem klifrar yfir landamæragirðingar þá megi ekki senda fólk sem syndir í land til baka án þess að því hafi verið neitað um landvistarleyfi með málsmeðferð sem við vitum að er mjög langdregin. Þessi dómur hefur örugglega átt þátt í því neyðarástandi sem nú er í Ceuta. Pedro Sánchez getur þó ekki skýlt sér alfarið á bak við hann eins og hann gerði í fyrstu viðbrögðum sínum í gær.

Pedro Sánchez ber sjálfur ábyrgð á vaxandi áhuga Marokkómanna á að komast til Spánar. Þeir eru ekki að flýja stríð eða óáran. Þeir eygja hins vegar raunhæfa von um dvalarleyfi á Spáni enda var hálfri milljón manna í ólögmætri dvöl á Spáni veitt dvalar- og atvinnuleyfi í apríl sl. Þá hefur ríkisstjórnin sýnt tómlæti við aðgæslu ytri landamæra Schengen-svæðisins eins og aðgerðaleysið við Ceuta sýnir.“

Sigríður segir að vandamálið muni breiðast út um Evrópu og full ástæða sé til að taka upp landamæraeftirlit gagnvart Spáni innan Schengen: 

„Skynsamir Marokkóbúar hafa nú rölt til baka í gegnum landamærahliðið sem haldið er opnu fyrir umferð í báðar áttir. Eftir eru þó tugir þúsunda sem bíða þess nú að verða líklega fluttir í móttökubúðir á meginlandi Spánar. En þar verður málið að vandamáli fleiri en Spánverja. Vandamálinu sem Ceuta glímir við í dag verður þar dreift um alla Evrópu.

Það er full ástæða fyrir Schengen-ríkin að taka upp tímabundið eftirlit með farendum frá Spáni. ESB-ríkin sitja hins vegar í súpunni ef Pedro Sánchez dettur í hug að veita þessum Marokkóbúum hæli. Ný löggjöf ESB um sameiginlega ábyrgð á hælisleitendum mun þá létta byrðunum af Spáni en þyngja þær norðar í álfunni.“