Guðmundur Felix Grétarsson, sem gekkst undir handleggjaágræðslu árið 2021, hefur greinst með krabbamein. Handleggjaágræðslan var söguleg og einsdæmi en Guðmundur missti báða handleggi í slysi árið 1998.
Guðmundur greinir frá því á Facebook-síðu sinni að hann sé kominn með krabbamein í nefi og þarf að láta fjarlægja það. Krabbameinið er staðbundið, hefur ekki breiðst út.
Guðmundur segir á Facebook:
„Gvendur var ekki lengi í heilu lagi. Ég var að fá þær fréttir að ég er með krabba í trýninu og það þarf að skera það af. Góðu fréttirnar eru þær að sú aðgerð mun líklega ná öllu æxlinu með manni og mús. Eins og staðan er núna þá á ég eftir að fara í petscan til að vera 100% á að þetta hafi ekki ferðast um búkinn á mér. Transplant teymið vill líka að ég hitti færustu sérfræðinga í "facial reconstruction" til að fá "second opinion" á því hvort að sé einhver möguleiki á að halda einhverju eftir og endurbyggja.“
Sjá einnig: Guðmundur Felix deilir frábærum fréttum - Sárin á handleggjunum nánast gróin