Fréttir

Ungur maður lést eftir að hafa notað lím sem getnaðarvörn – Limurinn límdur saman

Mynd
Parið notaði sterkt epoxy lím sem það hafði áður verið að sniffa.

Indverskur maður á þrítugsaldri lést eftir að hafa notað sterkt lím sem getnaðarvörn. Við krufningu fannst grænt efni í kviðarholi hans.

Hinn 25 ára Salman Mirza lést árið 2021 eftir að hafa notað sterkt lím sem getnaðarvörn. Var limur hans límdur saman.

Eins og segir í frétt Times of India um málið þá hefur það nú verið rifjað upp og heldur fjölskylda Mirza því fram að unnusta hans hafi límt getnaðarlim hans saman. Hafa þau sakað hana um morð og kært til lögreglu.

Mirza og unnusta hans voru eiturlyfjanotendur. Parið hafði verið að anda að sér sterku epoxy lími til að komast í vímu á hóteli í borginni Ahmedabad, í vesturhluta landsins, þegar slysið skeði. Vildu þau stunda mök en áttu enga smokka. Til þess að komast hjá getnaði hafi limur hans verið límdur saman.

Degi seinna fannst Mirza meðvitundarlaus í runna fyrir utan hótelið. Farið var með hann á sjúkrahús þar sem hann lést skömmu seinna. Við krufningu fannst ónefnt grænt efni í kviðarholi hans. Dánarorsökin var líffærabilun margra líffæra.