Fréttir

Skipverjum Bandero verður haldið um borð fram yfir verslunarmannahelgi

Mynd

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, er fullviss um að skipverjum á Bandero, skipi hvalverndarsinnans Pauls Watson, verði haldið um borð í skipinu fram yfir verslunarmannahelgi. 

Mbl.is greinir frá. 

Segir Georg að skipverjum verði haldið á skipinu þar til lögregla og Landhelgisgæsla hafa nægilegan mannafla til að handtaka þá og færa á brott. 

Landhelgisgæslan og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero í gærkvöldi og tóku yfir stjórn skipsins. Áhöfnin á Hval 9 óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar fyrr um kvöldið þar sem áhöfnin taldi öryggi sínu ógnað auk þess sem skipstjóri Bandero hlýddi ekki fyrirmælum Landhelgisgæslunnar. Skipstjóri Bandero var handtekinn og skipið fært til hafnar í Reykjavík. 

Sjá nánar hér