Fréttir

Segir að aðgerðin gegn Bandero hafi ekki snúist um hvalveiðar

Mynd
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir í viðtali við RÚV að aðgerðir Landhelgisgæslunnar gegn Bandero, skipi hvalaverndunarsinnans Paul Watson, hafi ekki snúist um hvalveiðar eða afstöðu til þeirra, heldur um að tryggja öryggi. 

Paul Watson heldur því fram að málið sé orðið að milliríkjadeilu. Þorbjörg tekur ekki undir það: 

„Hér var í gangi löggæsluaðgerð á hafi úti og með allri virðingu fyrir þeim ágæta manni þá er hann ekki erlent stjórnvald.“

Þorbjörg segir að enginn komist upp með að ógna öryggi fólks á hafi úti innan íslenskrar landhelgi í nafni aktívisma.

Sjá einnig: Svona yfirtók sérsveitin og Landhelgisgæslan Bandero MYNDBÖND