Valdimar Víðisson, bæjarfulltrúi Framsóknar í Hafnarfirði og fyrrum bæjarstjóri Hafnarfjarðar, er kominn með nýtt starf og fer aftur á kunnuglegar slóðir, í skólasamfélagið. Valdimar greinir frá því að hann taki við 1. ágúst sem skólastjóri Húsaskóla í Grafarvogi til eins árs.
„Nýr kafli tekur við hjá mér þann 1. ágúst þegar ég hef störf sem skólastjóri Húsaskóla í Grafarvogi en um er að ræða tímabundið verkefni til eins árs. Ég hlakka til að snúa aftur inn í skólasamfélagið þar sem ég hef rúmlega 20 ára reynslu sem skólastjórnandi, fyrst í Grenivíkurskóla og síðan í Öldutúnsskóla hér í Hafnarfirði. Eftir góða umhugsun ákvað ég að velja þetta tímabundna verkefni og snúa aftur á vettvang sem ég þekki vel, hef mikla reynslu af og ber sterkar taugar til. Skólinn hefur alltaf átt stóran stað í hjarta mínu og ég hlakka til að takast á við þetta spennandi verkefni.“
Valdimar segir að honum hafi undanfarnar vikur boðist mörg spennandi verkefni, þar á meðal bæjarstjórastöður og önnur ábyrgðarstörf.
„Ég finn að fólk ber traust til mín og fyrir það er ég ákaflega þakklátur. Ástæðan fyrir því að ég tók ekki að mér verkefni eins og bæjarstjórastarf í öðru sveitarfélagi er sú að ég vil ekki hverfa frá verkefnum mínum í Hafnarfirði. Ég var kosinn af Hafnfirðingum til að vinna fyrir Hafnfirðinga og það mun ég gera áfram. Samhliða starfinu í Húsaskóla mun ég áfram sinna starfi mínu sem bæjarfulltrúi og vinna af heilindum fyrir Hafnfirðinga, eins og ég hef ávallt gert. Ég finn sterkt fyrir trausti og stuðningi frá Hafnfirðingum og fyrir það er ég og mín fjölskylda innilega þakklát. Sá stuðningur skiptir okkur miklu máli.“
Valdimar segir hann hlakka til samstarfsins við nemendur, starfsfólk og foreldra í skólasamfélagi Húsaskóla.
„Jafnframt hlakka ég til áframhaldandi samstarfs við Hafnfirðinga og mun áfram leggja mitt af mörkum fyrir bæinn sem mér þykir svo vænt um. Framtíðin er björt og fjölmörg tækifæri sem bíða. Ég þakka ykkur, kæru vinir og fjölskylda, fyrir þennan mikla stuðning og væntumþykju. Þið eruð best.“