Fréttir

NICEAIR flýgur ekki til og frá Íslandi út árið 2027

Mynd
Aðsend mynd

NICEAIR hefur ákveðið að fljúga ekki á áætlunarleiðum til eða frá Íslandi það sem eftir lifir sumars 2026 né samkvæmt vetraráætluninni 2026–2027. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. 

Ákvörðunin var tekin eftir ítarlegt mat á stöðu flugrekstrar á alþjóðamarkaði og segir félagið að hún hafi ekki verið auðveld.

Þótt eftirspurn eftir flugferðum sé áfram góð á mörgum mörkuðum í Evrópu hafi alþjóðlegt efnahags- og stjórnmálaástand skapað mikla óvissu fyrir flugfélög. Sérstaklega er þar bent á óstöðugt ástand vegna Íran-deilunnar sem hafi valdið miklum sveiflum á orkumörkuðum. Afleiðingin sé óvenjuhátt og ófyrirsjáanlegt eldsneytisverð sem geri langtímaáætlanagerð erfiða.

Jafnframt segir NICEAIR að rekstrar- og viðskiptaaðilar hafi sýnt meiri varfærni en búist var við. Þrátt fyrir jákvæðar viðræður hafi margir samstarfsaðilar ekki viljað skuldbinda sig til lengri tíma eða taka á sig aukna rekstraráhættu við núverandi aðstæður. Það hafi torveldað uppbyggingu stöðugs og fjárhagslega sjálfbærs flugrekstrar fyrir ferðir til og frá Íslandi.

Í staðinn hyggst félagið beina starfsemi sinni að vaxandi leiðakerfi innan meginlands Evrópu yfir komandi vetur, þar sem það segist njóta öflugri stuðnings frá flugvöllum, sveitarfélögum og samstarfsaðilum. 

NICEAIR segir Akureyri eiga skilið traustar flugsamgöngur en að félagið muni ekki hefja áætlunarflug til Íslands á ný fyrr en markaðsaðstæður og rekstrarumhverfi séu orðin stöðug og reksturinn geti staðið undir sér til lengri tíma.