Mikið fjölmenni kom saman núna rétt í þessu í Herjólfsdal í blíðskaparveðri þegar Þjóðhátíð 2026 var formlega sett. Við setninguna flutti biskups Íslands hugvekju og minnti á samstöðu og forvarnir. Það var síðan Hörður Orri Grettisson formaður ÍBV sem setti hátíðina.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá þjóðhátíðarnefnd sem fer að öðru leyti hér á eftir í heild sinni:
Hörður gerði áratuga hefðir og þrotlausa vinnu sjálfboðaliða íþróttafélaganna Þórs og Týs að umtalsefni. Þeir lögðu grunninn að þeirri Þjóðhátíð ÍBV sem landsmenn þekkja í dag. Hann færði þeim sérstakar þakkir sem og öllum þeim sem koma að skipulagi hátíðarinnar í ár.
Hörður Orri Grettisson formaður ÍBV, setur hátíðina. Mynd: Jón Ragnar Jónsson “Jon from Iceland”
Þúsundir verða ein heild og þúsund hjörtu slá í takt.
Magnús Bragason Vestmannaeyingur flutti hátíðarræðu og lagði út frá samverunni „Við komum hingað úr ólíkum áttum. Sum búum við hér, önnur eiga rætur í Eyjum. Svo eru þeir fjölmörgu gestir sem koma hingað ár eftir ár vegna þess að þeir elska Eyjarnar. En þegar við stöndum hér skiptir það ekki máli hvaðan við komum. Þúsundir einstaklinga verða að einni heild og þúsund hjörtu slá í takt.”
Magnús Bragason (t.v) flutti hátíðarræðu og Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands hugvekju. Mynd: Jón Ragnar Jónsson “Jon from Iceland”
Þar sem von og bjartsýni eru fyllsta alvara
Við athöfnina flutti Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, hugvekju þar sem hún fjallaði meðal annars um samveru, samhug og mikilvægi þess að bera umhyggju hvert fyrir öðru á hátíð sem þessari. „Og það er enginn staður á Íslandi sem minnir okkur jafn skýrt á að vonir og björt sýn á lífið eru enginn barnaskapur heldur fyllsta alvara. Hún er ákvörðun. Hún er ákvörðun fólks sem gróf heimili sín upp úr öskunni, plantaði blómum þar sem hraunið hafði runnið og hélt áfram að halda þjóðhátíð.“
Hrósaði fornvarnarstarfi
Í hugvekju sinni hrósaði hún einnig því öfluga forvarnarstarfi sem unnið hefur verið í Vestmannaeyjum, meðal annars með átakinu Bleiki fíllinn, sem minnir á að ofbeldi eigi aldrei að eiga sér stað á útihátíðum. Hún lagði áherslu á að það væri sameiginlegt verkefni gesta, aðstandenda hátíðarinnar, Þjóðhátíðarnefndar, ÍBV og Vestmannaeyinga að skapa öruggt umhverfi þar sem allir gætu notið hátíðarinnar. Þá hvatti hún alla til að leggja sitt af mörkum til þess að verslunarmannahelgin yrði bæði slysalaus og ofbeldislaus með því að sýna þolinmæði, virðingu og velvild í garð samferðafólks síns.
Hvítu tjöldin líklega aldrei fleiri
Hvítu tjöldin, eitt helsta kennileiti Þjóðhátíðar, risu í Herjólfsdal á miðvikudag þegar lokaundirbúningur hátíðarinnar náði hámarki. Hið árlega Húkkaraball fór síðan fram á fimmtudagskvöld við góðar aðstæður og samkvæmt upplýsingum lögreglu fór fyrsta nótt hátíðarinnar vel fram.
Virðum mörk og gæði hvors annars
Veður hefur leikið við hátíðargesti en spáð er björtu og hlýju veðri í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Lögregla verður með öflugan viðbúnað alla helgina og hvetur gesti til að sýna tillitssemi, virða mörk annarra og leggja sitt af mörkum til þess að hátíðin verði örugg og ánægjuleg fyrir alla.
Útsýni yfir hátíðarsvæðið í Herjólfsdal við setningu Þjóðhátíðar árið 2026. Mynd: Einar Birgir Einarsson.
Eins og vera ber voru flutt tónlistaratriði við setningu Þjóðhátíðar. Mynd: Jón Ragnar Jónsson “Jon from Iceland”