Um fátt hefur verið fjallað meira í íslenskum fjölmiðlum í gærkvöldi og dag en töku Landhelgisgæslunnar á Bandero, skipi samtaka sem kennd eru við Paul Watson. Allir áhafnarmeðlimir voru handteknir. Ólíklegt er að farið verið fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum þeirra en farið hefur verið fram á að Útlendingastofnun vísi áhöfninni úr landi. Paul Watson er hæstánægður með atburði gærkvöldsins og segir þá gagnast vel til að vekja athygli á hvalveiðum Hvals h.f. um heimsbyggðina. Hann og samtök hans hafa birt fjölda færslna um töku skipsins á samfélagsmiðlum og þar má lesa mikinn fjölda athugasemda þar sem Íslendingum eru ekki vandaðar kveðjurnar. Meðal annars er kvatt til þess að æðstu ráðamönnum þjóðarinnar verði sendir fjöldapóstar og að Ísland verði beinlínis sniðgengið.
Í færslum Watson og samtaka hans er þess ekki getið að Landhelgisgæslan hafi tekið skipið yfir vegna gruns um að skipverjar hafi reynt að henda netum og járnarusli í skrúfu annars af hvalveiðiskipum Hvals. Í samtali við Vísi segir Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu að öll áhöfnin sé grunuð um þetta athæfi sem teljist vera hættubrot. Málið snúist einnig um að ekki hafi verið farið eftir ákvæðum laga um að sjófarendum beri að hlýða fyrirmælum Landhelgisgæslunnar og að hlýða á rás 16, alþjóðlega neyðar- og uppkallsrás sjófarenda. Farið hafi verið fram á brottvísun allrar áhafnarinnar úr landi og endurkomubann en fyrir 14 af 21 áhafnarmeðlim myndi það eiga við um allt Schengen-svæðið.
Gott
Watson og samtök hans halda því hins vegar fram að skipið hafi verið tekið vegna þess að það hafi náð að stöðva veiðar hvalveiðiskipsins. Skipverjar hafi ekki skaðað neinn eða valdið neinu eignatjóni. Er þess krafist að áhöfnin öll verði látin laus.
Watson lýsir því hins vegar yfir í viðtali við Vísi að hann sé mjög ánægður með töku skipsins og segir hana hjálpa til við að vekja athygli á veiðum Hvals á alþjóðavettvangi.
Watson og samtök hans fá mikinn stuðning í fjölda ummæla við allar færslurnar. Sumir gagnrýna hann þó og lýsa yfir ánægju með aðgerðir Landhelgisgæslunnar og þó nokkrir Íslendingar malda í móinn en meirihluti ummæla er frá fólki sem styður eindregið að hvalveiðum verði hætt og lætur Íslendinga heyra það.
Skömm
Ummælin eru fjölmörg svo hér er aðeins rými til að taka nokkur dæmi:
„Kannski mun gervigreind í framtíðinni skutla geðsjúku hvalamorðingjana og þá sem eru meðvirkir með þeim og réttlæta það með því að vísa til þessara viðbjóðslegu glæpa, sem Ísland er að verja.“
„Því miður er Íslandi stjórnað af vægðarlausu fólki sem hugsar um peninga.“
„Sjúkir glæpamenn.“
Einn aðili kallar eftir því að gefin verði út alþjóðleg handtökuskipun á hendur Kristjáni Loftssyni.
„Skammist ykkar, Ísland.“
„Hvað er að ykkur?“
„Watson er hetja. Skömmin er Íslands.“
„Þetta er glæpur.“
„Þarna sýndi Ísland sitt rétta eðli.“
Póstar og sniðganga
Í bæði færslum Watson og samtaka hans og ýmsum ummælum er hvatt til þess að fólk sendi tölvupósta til íslenskra yfirvalda þar sem þess verði krafist að áhafnarmeðlimir verði leystir úr haldi. Hvatt er meðal annars til þess að póstar af þessu tagi verði sendir til Kristúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Höllu Tómasdóttur forseta Íslands.
Sumir hvetja einnig til þess að Ísland verði sniðgengið og þá ekki síst með því að fólk ferðist ekki til landsins og dragi þar með úr þeim tekjum sem íslenskt efnahagslíf hefur af ferðaþjónustu.
Ummæli þar sem hvalveiðar og taka Bandero eru gagnrýnd koma frá fólki víða að úr heiminum en hvort einhver áhrif eða afleiðingar verði af þessari óánægju og gagnrýni í garð Íslands mun tíminn leiða í ljós.