Fréttir

Í fyrsta sinn sem foreldri er dæmt fyrir fjöldamorð barns – Gaf 13 ára syni hríðskotariffil í jólagjöf

Mynd
Gray feðgarnir munu sitja lengi inni.

Dómstóll í Georgíufylki í Bandaríkjunum hefur dæmt föður samábyrgan fyrir fjöldamorði sonarins. Sonurinn, sem var þá fjórtán ára, myrti fjóra og særði sjö í skotárás í skóla árið 2024.

Miðillinn The Daily Beast greinir frá þessu.

Colin Gray, faðir hins 16 ára Colt Gray, hefur verið sakfelldur og dæmdur fyrir samábyrgð á morðum sonarins. Colin gaf syninum byssu og brást ekki við ofbeldisfullri og vafasamri hegðun hans.

AR 15 hríðskotariffill

Colin hefur verið dæmdur í 15 ára fangelsi. Hann er fyrsta foreldrið til þess að vera dæmt fyrir hlutdeild í fjöldamorði barns. Colin, sem er 55 ára, var fundinn sekur í 27 ákæruliðum. Meðal annars manndrápi af gáleysi.

Hann meðal annars gaf syninum AR 15 hríðskotariffil í jólagjöf árið 2023, þegar hann var aðeins 13 ára. Þá sögðu saksóknarar að faðirinn hefði ítrekað hundsað viðvörunarmerki um son sinn. Meðal annars ofbeldisfulla hegðun hans.

Mynd

Colt réðist inn í Appalachee framhaldsskólann í útjaðri Atlanta borgar þann 4. september árið 2024. Hann sallaði niður nemendur og starfsfólk á göngum skólans með áðurnefndum afleiðingum. Tveir nemendur og tveir kennarar létust.

Benti á föðurinn

Colt var nýlega dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Ákvörðun sem hefur verið gagnrýnd í ljósi þess að hann var 14 þegar hann framdi verknaðinn.

„Hann er ástæðan fyrir því að fjórir eru látnir, sjö særðir og ótal aðrir eru í áfalli,“ sagði Brad Smith, sakskóknari um föðurinn í réttarsalnum. „Hann er ástæðan fyrir því að 16 ára gamall drengur var dæmdur fyrir tveimur dögum í ævilangt fangelsi.“

Í réttarhöldunum voru birt sönnunargögn fyrir því að Colin hafi vitað að sonur sinn gæti framið ódæði sem þetta. Hann hafi þekkt hegðun hans og séð ljósmynd af fjöldamorðingja úr öðrum skóla í herberginu hans.

Blóð á þínum höndum

Nokkrum vikum áður en Colt framdi fjöldamorðið sendi Colin honum textaskilaboð sem eru mjög opinberandi um hvað Colin vissi.

„Þegar eitthvað gerist, þá veistu að það ert þú sem ert með blóðugar hendur,“ stóð í skilaboðunum.