Fréttir

Er þér brátt í brók? – Nýtt íslenskt app leiðir fólk á næsta klósett

Mynd
Stundum þarf maður að komast strax á klósettið.

Nýtt íslenskt smáforrit, eða app, sýnir notendum hvar næsta salerni er. Smáforritinu er ætlað að bjarga fólki sem verður brátt í brók.

Forritið, sem er í boði bæði fyrir Android og Apple, kallast Krapp og er með heimasíðuna Krapp.is.

„Hvort sem þú ert á ferðalagi um landið, í bæjargöngu eða á útihátíð, þá kemur að því að þurfa að finna salerni – og þá er gott að hafa Krapp í vasanum,“ segir á síðunni.

Forritið hjálpar notendum að finna almenningssalerni um allt Ísland á nokkrum sekúndum. Gefin er upp staðsetning salerna, opnunartíma þeirra og hvort aðgangur sé ókeypis eða gegn gjaldi. Forritið er bæði á íslensku og ensku og er ókeypis að niðurhala því.

„Þannig sparar þú tíma og getur slakað á vitandi að lausnin er alltaf innan seilingar,“ segir á síðunni.

Forritið notar GPS kerfið í farsímanum til að finna staðsetningu og leiðir fólk á næsta salerni. Kortið er litamerkt og á því eru upplýsingar um salernin.

Mynd