Fréttir

Ágúst brýnir að gleyma ekki mikilvægasta ferðafélaganum: „Þægilegur ferðafélagi“

Mynd
Myndin er búin til með gervigreind, ChatGPT.

Stærsta ferðahelgi ársins er nú hafin, sjálf verslunarmannahelgin, þegar þúsundir Íslendinga leggja undir þjóðvegi landsins og halda á útihátíðir, í bústaðinn eða annað til að njóta langrar helgar og vonandi góðs veðurs með sínum nánustu.

Þessi árstími er einnig sá tími þegar flest alvarlegu slysin verða og ferðamestu helgarnar eru hættulegasti tíminn í umferðinni eins og meðaltalstölur síðustu tíu ára sýna. Ágúst Mogensen sérfræðingur í forvörnum bendir í grein sinni á þá óhugnanlegu staðreynd að árið 2025 slösuðust 182 í alvarlegum umferðarslysum og 10 létust samkvæmt skýrslu Samgöngustofu en árið 2024 slösuðust 228 alvarlega og 13 létust.

„En af hverju er þetta svona og hvað getum við gert til þess að draga úr slysum á þjóðvegunum? Hér eru nokkur góð ráð um hvernig er best að haga sér í umferðinni til að lágmarka hættuna.“ 

Mynd
Ágúst Mogensen.

Líkur á að deyja í bílslysi fjórtánfaldast ef þú notar ekki bílbelti

Af þeim 192 sem slösuðust alvarlega eða létust árið 2025 voru 80 ökumenn eða farþegar í fólksbifreiðum. „Það eru ýmsar leiðir til að fækka slysum og draga úr meiðslum í fólksbifreiðum og ber fyrst að nefna að spenna beltin alltaf.“ 

Segir Ágúst það slæma þróun að samkvæmt upplýsingum Samgöngustofu velja ungmenni á aldrinum 18-24, í auknum mæli, að sleppa að spenna bílbelti. 

„Mikilvægt er að ræða beltanotkun við unga fólkið því þú fjórtánfaldar líkurnar á að láta lífið í bílslysi með því að nota ekki bílbelti samkvæmt upplýsingum Samgöngustofu. Hraðakstur er afar hættulegur og hefur kostað mörg mannslíf gegnum tíðina. Erfiðara er að bregðast við mistökum á miklum hraða, hættara við að missa stjórn á bifreiðinni og árekstrar verða harðari. Þá er hætta á missa prófið eða þurfa að borga himinháar sektir alltaf til staðar því sá sem ekur á 125 km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. getur átt von á 120.000 króna sekt og 2 punkta. Það er því til mikils að vinna að allir spenni beltin og keyri á löglegum hraða.“ 

Athyglisþjófurinn

Ágúst fer einnig yfir notkun farsíma við akstur, en árið 2025 sögðust 12% ökumanna tala í farsíma án handfrjáls búnaðar stundum eða oft og 25% sögðust gera það sjaldan. 

„Þessi athyglisþjófur er of algengur í umferðinni og veldur hættu þar sem ökumenn eru ekki með fulla athygli við aksturinn. Látum símana vera meðan á akstri stendur og tengjum símann við bílinn eða heyrnatól ef við þurfum nauðsynlega að hringja eða svara símtölum. Að stilla síma á akstursstillingu (Driving focus/Driving mode) áður en haldið er af stað dregur úr áreiti frá símanum og óþarfa truflun.“ 

Ölvunarakstur er ólöglegur, líka í sumarfríinu

Árið 2020 voru reglur sem segja til um hvort ökumaður geti stjórnað ökutæki örugglega eftir áfengisneyslu breytt og viðmiðið lækkað úr 0,5‰ áfengis í blóði í 0,2‰. Var þetta gert í ljósi fjölda alvarlegra umferðarslysa þar sem ölvunarakstur kemur við sögu. 

„Ölvunarakstur er ekki einkamál þess sem ekur því hann getur haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir aðra ökumenn, farþega og vegfarendur almennt. Nú um hásumar er rétt að ítreka að það gilda sömu reglur um ölvunarakstur hvort sem þú ert að aka í vinnuna, dvelur í sumarhúsinu, hjólhýsinu, veiðihúsi eða golfskálanum. Eftir einn ei aki neinn, alltaf!“ 

Ferðavagnar og húsbílar

Ágúst brýnir einni gfyrir ökumönnum sem draga á eftir sér hjólhýsi og ferðavagna að sýna þurfti aukna varkárni hvað veður varðar og vera tilbúnir að breyta áætlun ef aðstæður versna.

„…taka á sig meiri vind en venjulegir fólksbílar og geta orðið óstöðug í hviðum, sérstaklega á opnum svæðum og brúm. Þess vegna er mikilvægt að fylgjast vel með spám frá Veðurstofu Íslands áður en lagt er af stað og vera tilbúin að breyta áætlun ef aðstæður versna. Í þessum aðstæðum er ekki hugrekki að halda áfram; það er ábyrgð að snúa við eða bíða. Þegar jafn vindur er 15-19 m/sek geta hviður orðið allt að 25 m/sek og ökutækin fokið útaf veginum.“ 

Ágúst minnir svo í lokin á líklega mikilvægasta ferðafélagann af þeim öllum, þolinmæðina.

„Hún er þægilegur ferðafélagi þegar langar raðir myndast á þjóðvegum landsins. Njótum og komum heil heim.“