Í nýrri tilkynningu frá Mosfellsbæ segir að vel gangi að fanga þá minka sem sluppu út af minkabúi í Mosfellsdal eftir að þeim var hleypt út úr búrum. Foreldrar í næsta nágrenni við minkabúið eru beðnir um að láta börn ekki sofa í barnavögnum utandyra en þeir foreldrar í dalnum sem eru fjær búinu eru beðnir um að gera ráðstafanir láti þeir börn sofa úti í barnavögnum.
Í tilkynningunni segir að veiðimenn á vegum Mosfellsbæjar með sérþjálfaða minkahunda hafi unnið að föngun minka. Settar hafi verið niður gildrur utan girðingar og við búið. Minkar hafi enn ekki farið í búrin utan marka búsins, eingöngu í búrin sem séu staðsett innan marka búsins sem gefi til kynna að þeir hafi ekki farið langt frá búinu. Að auki hafi veiðimenn bæjarins fangað fleiri minka, langflesta í nágrenni búsins.
Ábendingar um minka hafi verið mjög fáar frá íbúum í Mosfellsbæ sem sé góðs viti. Ábendingar hafi komið frá íbúum í Norðlingaholti, Grafarholti og Grafarvogi. Talið sé ólíklegt að það séu minkar sem tengist þessum atburði.
Segir enn fremur að björgunarsveit hafi staðið vaktina við veglokun til miðnættis í gærkvöldi og tekið aftur við kl. 8 í morgun. Minkaveiðimenn á vegum sveitarfélagsins verði að störfum næstu daga og vikur. Þeir séu allir í gulum eða appelsínugulum vestum merktum Mosfellsbæ og eigi því að vera auðþekkjanlegir. Verði íbúar varir við ómerkta veiðimenn sé mikilvægt að tilkynna það til Mosfellsbæjar í gegnum netfangið mos@mos.is.
Næstu daga og vikur verði búrin höfð utan girðingar. Búranna verði vitjað reglulega af veiðimönnum á vegum Mosfellsbæjar til að gæta velferðar dýranna.
Börnin
Í tilkynningunni eru íbúar í Mosfellsdal beðnir um að láta börn ekki sofa úti í barnavögnum í næsta nágrenni við minkabúið, á næstu dögum. Íbúar sem séu fjær í dalnum hugi að því að hafa net yfir vögnunum.
Minnt er á að gæludýr séu ávallt á ábyrgð eigenda sinna. Fram yfir helgi sé ekki mælt með að hleypa köttum í dalnum út, eigendur hunda geti farið með þá út í taumi og alifuglar eigi að vera innan girðingar.
Eins og staðan sé núna hafi ekki verið fangaður minkur í þéttbýli í Mosfellsbæ og því ekki talin ástæða til að halda gæludýrum inni í öðrum hverfum í Mosfellsbæ en Mosfellsdal. Gæludýraeigendur séu beðnir um að gæta fyllsta öryggis og eru enn og aftur minntir á að gæludýr séu ávallt á ábyrgð eigenda.