Fréttir

Vitna leitað vegna innbrotsins í minkabúið í Mosfellsdal - Dýraverndarsamtök segja um hermdarverk að ræða

Mynd
Lögreglustöðin við Hverfisgötu. Mynd: Maggi gnúsari.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að vitnum sem kunna að hafa orðið vör við mannaferðir í nótt þegar brotist var inn í minkabúið Dalsbú í Mosfellsdal og fjölda minka hleypt út úr búrum. Samtök um dýravelferð segja um hermdarverk að ræða.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum í dag hefur fjöldi manna unnið hörðum höndum að því að ná dýrunum og fanga þau aftur eða aflífa. Ástandið er sagt hafa batnað síðan í morgun og engir minkar hafa sést lengra en 500 metra frá öryggisgirðingu búsins. Eigandi þess Ásgeir Pétursson segir í samtali við Vísi að hann ætli ekki að láta þessa árás buga sig og muni halda rekstrinum ótrauður áfram en bú hans er síðasta minkabúið á landinu.

Í tilkynningu lögreglunnar segir að vitna sé leitað vegna rannsóknar á málinu. Talið sé að óprúttinn aðil eða aðilar hafi verið að verki og því leiti lögreglan upplýsinga um mannaferðir í Mosfellsdal frá því um miðnætti og þar til málið var tilkynnt klukkan rúmlega sjö í morgun. 

Ekki sé ósennilegt að sá eða þeir sem að þessu stóðu hafi verið akandi og lagt ökutæki sínu á svæðinu í aðdragandanum. Mörg ökutæki séu búin myndavélum og því viðbúið að myndefni frá áðurnefndum tíma sé að finna í fórum einhverra. Einnig sé biðlað til forsvarsmanna öryggismyndavéla sem kunni að vera á umræddu svæði að athuga með myndefni vegna málsins. M.a. vegna umferðar um Þingvallaveg, Hlaðgerðarkotsveg, Reykjahlíðarveg, Æsustaðaveg, Æsustaðaland, Hraðastaðaveg, Helgadalsveg og Dalsbúsveg.

Hinir sömu eru vinsamlegast beðnir um að senda upplýsingar um slíkt á netfangið 0617@lrh.is og gefa þar upp bæði nafn sitt og símanúmer. Í framhaldinu verður haft samband við viðkomandi. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í síma 444 1000.

Hermdarverk

Samtök um dýravelferð á Íslandi (SDÍ) hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna innbrotsins í Dalsbú en hún er eftirfarandi:

„Sá harmleikur sem nú á sér stað í Mosfellsdal þar sem minkum var sleppt út í náttúruna, er að mati SDÍ sorglegur atburður. SDÍ styður ekki hermdarverk af þessu tagi. Afstaða samtakanna er skýr hvað það varðar. Að sama skapi er afstaða SDÍ skýr varðandi búrahald loðdýra. Það er ekki iðja sem ætti að líðast í nútímasamfélagi og atburðurinn í dag er þörf áminning til stjórnvalda um að taka af skarið og leggja niður loðdýrahald á Íslandi.“