Unnið er að því að handsama þá þúsundi minka sem var sleppt út úr Dalsbúi. Útlit er fyrir að um innbrot hafi verið að ræða en Ásgeir Pétursson, eigandi Dalsbús, sagði í samtali við RÚV að engin skilaboð hafi verið skilin eftir.
Sjá frétt: Sveinn Óskar kallar eftir skýringum
Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er með hænur í garðinum sínum, hún segir í færslu á Facebook að það sé ábyrgðarleysi að sleppa minkunum.
„Ef grunur lögreglu reynist réttur og dýrunum var sleppt viljandi þá er það ekki dýravernd. Það er ábyrgðarleysi,“ segir hún.
„Undanfarið höfum við séð innbrot á bú, fyrst í svínabú, síðan alífuglabú og nú á minkabú. Afleiðingarnar bitna fyrst og fremst á dýrunum sjálfum. Nú eru hundruð minka á ferðinni í Mosfellsdal, með þeirri hættu sem því fylgir fyrir fuglalíf, búfé, gæludýr og annað lífríki. Það er líka fullkomlega eðlilegt að íbúar á svæðinu hafi áhyggjur.“
Samkvæmt lögreglu hefur verið notast við dróna með hitamyndavél. „Búið er að ná mörgum dýrum og aðgerðir ganga vel. Næstu skref eru að fanga dýr sem eru innan öryggisgirðingar og koma þeim inn í hús. Þegar því er lokið halda minkaveiðimenn áfram með hunda í næsta nágrenni við búið og munu halda því áfram eins lengi og þörf er á.“ Matvælastofnun Mosfellsbæjar, slökkvilið, björgunarsveitir og lögreglan hafa sett saman aðgerðastjórn sem hefur bækistöðvar sínar að Gljúfrasteini, fyrrum heimili Halldórs Laxness.
Blaðamaðurinn og samfélagsrýnirinn Björn Þorláksson segir að hann hafi margsinnis sagt að honum þyki vænt um öll dýr nema minkinn.
„Sá snemma á bökkum Mývatns hvers konar raðmorðingi hann er. Eirir engu, taumlaus í grimmd sinni. Mæli með vélbyssuhreiðrum til að fella eins marga minka og mögulegt er. Skalinn á skaðanum gæti orðið svakalegri en orð ná yfir. Þá er ég að meina skaðinn á lífríki náttúru landsins,“ segir hann í færslu á Facebook.
„Ef aktívistar hafa hleypt dýrunum út reiða þeir ekki vitið í þverpokum. Þeir hafa þá valdið öllum náttúruunnendum mesta skaða sem hægt er að vinna.“