Brotist var inn í minkabúið Dalsbú og miklar skemmdir unnar á húsunum, nokkur þúsund minkar sluppu og heyrast nú skothvellir í Mosfellsdal þar sem verið er reyna að koma í veg fyrir stórskaða. Enginn samtök hafa lýst yfir ábyrgð á verkinu og segir Ásgeir Pétursson, eigandi Dalsbús, í samtali við RÚV að engin skilaboð hafi verið skilin eftir.
Mosfellsbær og samtökin Dýrfinna hafa hvatt íbúa til að halda gæludýrum sínum inni á meðan staðan er metin.
„Við hvetjum gæludýraeigendur í Mosfellsbæ og nærliggjandi hverfum, svo sem Grafarholti, til að gæta sérstakrar varúðar og halda dýrum sínum inni ef kostur er. Þetta á sérstaklega við um fugla, kanínur, önnur smádýr og útiketti,“ segir í tilkynningu Dýrfinnu.
„Ef þið verðið vör við mink eða þurfið aðstoð vegna gæludýrs, hafið endilega samband við okkur. Við reynum eftir fremsta megni að aðstoða og veita ráðgjöf.“
Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnunar segir í samtali við Mbl að það sé alvarlegt fyrir dýralíf í nágrenninu að minkarnir séu lausir, hún útilokar ekki að mannfólki sé hætta á þeim: „Það er aldrei að vita hvað minkarnir geta tekið upp á. Það er bara ákall til allra að fara varlega.“
Víghóll, samtök íbúa í Mosfellsdal, óttast minkafaraldur næstu áratugina og vilja að hagsmunir náttúrunnar verði settir ofar hagsmunum Dalsbús.
„Stjórn Víghóls krefst þess að gripið verði til allra mögulegra ráðstafana til að draga sem mest úr þeim fyrirséða skaða á náttúruna sem af þessum atburði mun hljótast. Við förum fram á það að hagsmunir náttúrunnar verði settir ofar fjárhagslegum hagsmunum búsins,“ segir í yfirlýsingu samtakanna. „Ef ekki verður allt reynt til að lágmarka skaðann óttumst við að minkafaraldur verði viðvarandi í Dalnum okkar næstu árin og jafnvel áratugina. Það myndi hafa varanleg áhrif á samfélagið okkar allra, dýra og manna.“
Sveinn Óskar Sigurðsson, oddviti Miðflokksins í Mosfellsbæ, kallar eftir skýringum frá Víghóli. „Hvað er átt við með þessari kröfu? Á fjölskylda, sem nú þegar hefur orðið fyrir verulegu tjóni, að bera ótakmarkaðan kostnað? Þessi orð kalla á frekari skýringar þeirra sem að tilkynningunni standa,“ segir hann í færslu í íbúahópi Mosfellinga.
„Fjölskyldufyrirtæki hér í Mosfellsbæ hefur orðið fyrir miklu tjóni. Eins og öðrum bændum þykir fólkinu sem rekur búið afar vænt um dýrin sín, bæði stór og smá, og margir bændur hafa byggt upp bú sín í gegnum ár og jafnvel aldir, frá kynslóð til kynslóðar.“
Haukur nokkur slær á létta strengi og segir:
„Ég er heldur betur til í fara í felulitina og reyna að skjóta mink uppí dal.“