Fréttir

Rósa krefst svara frá lögreglunni - „Hver var lúkningin?“

Mynd
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar

Rósa Guðbjartsdóttir alþingismaður Sjálfstæðisflokksins segir að í ljósi innbrotsins í minkabúið í Mosfellsdal í nótt sé komin tími til að einhver svör fáist frá lögreglu hver staðan sé í rannsókn á ítrekuðum innbrotum í framleiðslubú þar sem dýrum er hleypt út.

Innbrotið í nótt í minkabúið í Mosfellsdal er ekki fyrsta málið af þessu tagi sem kemur upp að undanförnu eins og mörgum er kunnugt.

Fyrir rétt um tveimur mánuðum var brotist inn í kjúklingabú í Mosfellsbæ þar sem fuglum var hleypt út úr búrum sínum. Í maí var brotist inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi og svínum hleypt út. Talið er að sami aðili hafi brotist inn á báðum stöðum en á kjúklingabúinu var skilið eftir bréf þar sem því var lýst yfir að þetta væri gert í nafni dýraverndar. Forsvarsmenn beggja búa og raunar einnig dýraverndarsamtaka fordæmdu verknaðina en hluti dýranna drapst og sum þurfti að aflífa.

Innbrotin á kjúklingabúið og svínabúið hafa verið til rannsóknar hjá lögreglu síðan en ekki liggur fyrir hvort talið sé að sami aðili eða aðilar hafi einnig brotist inn í minkabúið.

Svör

Í tilkynningu frá Mosfellsbæ nú í kvöld segir að tekist hafi að ná utan um það verkefni að fanga minkana sem sluppu út og unnið sé að því ná þeim úr hópnum sem sluppu út fyrir öryggisgirðingu.

Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir í pistli á Facebook að það sé augljóslega alvarlegt mál ef minkar gangi lausir:

„Lausir minkar í náttúrunni eru gríðarlegt áhyggjuefni. Tilhugsunin um að slík rándýr gangi laus á víðavangi er ógnvekjandi svo ekki sé fastar að orði kveðið. Litlum gæludýrum, húsdýrum, fuglum og jafnvel ungum börnum þarf að huga sérstaklega að, og það ekki einungis í nánasta umhverfi minkabúsins því dýrin geta farið hratt langa leið.“

Í ljósi atburða næturinnar og dagsins segir Rósa að nú þurfi lögreglan að svara því hver sé eiginlega staða rannsóknar á þessum innbrotum. Það sé þörf á málalokum:

„Nú þurfa lögregluyfirvöld að svara því hvort og hvernig var reynt að hafa hendur í hári skemmdarvargana sem brutust inn á svína- og kjúklingabú og hleyptu dýrum út fyrir fáeinum vikum. Hvernig miðar þeim rannsóknum? Er þeim lokið? Hver var lúkningin?“