Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands segir að fólk í ummönnunarstörfum eigi að vera með hæstu launin en ekki þau lægstu. Þetta kom fram í ræðu Burnham þar sem hann var að marka nýja stefnu í velferðarmálum, lýsir hann aðgerðum fyrri ríkisstjórna sem alvarlegri vanrækslu.
„Það er hreinlega skammarlegt að stjórnmálamenn hafi frekar sett það í forgang að slá pólitískar keilur en að leysa þetta vandamál,“ sagði hann í ræðu á hjúkrunarheimili í Enfield, samkvæmt Independent. Ætlar hann að fá þingmenn Íhaldsflokksins og Frjálslyndra demókrata að borðinu til að fara yfir málefni velferðarþjónustu eldri borgara. Hefur Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins, gagnrýnt Burnham fyrir að fá ekki boð.
Faðir Burnham er nú á hjúkrunarheimili og byrjaði hann á að þakka fyrir þá góðu þjónustu sem hann hefur fengið. „Ég hef fylgst með hundruðum starfsfólks hugsa um pabba minn. Þegar einhver í fjölskyldunni fær ummönnun þá fer maður að horfa öðruvísi á hlutina,“ sagði Burnham. „Ef maður hugsar um það að vinna við að hugsa um ættingja annars fólks, það er stórfenglegt. Þetta á að vera best launaða starfsfólkið, ekki það lægst launaða.“
Ætlar hann að ráðast í viðamiklar umbætur á starfsumhverfi hópsins og færa það nær því sem tíðkast á sjúkrahúsum. „Við ætlum raunverulega að hugsa um starfsþróun fólks í ummönnunarstörfum þannig að það geti unnið sig upp í störf á sjúkrahúsum. Við þurfum að hugsa um þetta sem eitt mengi,“ sagði Burnham. „Við munum ekki fá þá ummönnum sem við viljum nema við styrkjum fólkið í framlínunni.“
Þessum markmiðum fylgja þó skattahækkanir, lofar hann þó að hækka ekki skatta á þá lægst launuðu eða virðisaukaskatt.