Fréttir

Egill mjög efins um tímasetninguna: „Pólitísk umræða er eiginlega orðin að tómu rugli og illindum“

Mynd
Jón Ferdínand Estherarson, Þorsteinn Pálsson og Egill Helgason. Samsett mynd.

„Ég hef verið mjög efins um að það sé góð hugmynd að efna til atkvæðagreiðslu um ESB á þessum tíma glundroða í veröldinni og heiftarlegrar pólaríseringar þar sem pólitísk umræða er eiginlega orðin að tómu rugli og illindum,“ segir fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason í færslu á Facebook. 

Vísar hann í frétt mbl um umræður á fundi Áfram Ísland á Selfossi nýverið þar sem Bjarni Harðarson, bókaútgefandi og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, velti upp hvort fasísk öfl nái yfirhöndinni í Evrópusambandinu. 

„Og jú - umræðan tekur á sig ýmsar undarlegar myndir. Þeir sem eru utanlega til hægri segja að ESB sé hálfgerður kommúnismi, þeir sem eru utarlega til vinstri segja að það sé samsæri auðvaldsaflanna - og hér er því svo haldið fram að ESB sé að þróast áttina til fasisma. Vituð þér enn - eða hvað?“

Jón Ferdínand Estherarson, formaður Sósíalistaflokksins, er einmitt á þeirri línu þó hann vilji ekki tala um fasisma:

„Evrópuþing hefur aldrei verið skipað stærri hluta öfga hægris (yfir fjórðung), ESB er að vígvæðast, bæði ríkin sjálf og mikið reifað í forystunni um stofnun Evrópuhers, gengið er allharkalega gegn rétti til mótmæla og frjálsrar tjáningar og nýverið samþykkt öfgafyllsta flóttamannalöggjöf í sögu sambandsins (fangabúðir flóttafólks í þriðju ríkjum). Svo ekki sé minnst á eflingu eftirlitsríkisins og sniðgöngu þingmeirihluta í þessu Chat Control máli þar sem tæknirisarnir og yfirvöld fá að sniðganga persónuverndarrétt borgara.“ 

Egill svarar honum einfaldlega með latnesku skammstöfuninni um að dæmið sé fullsannað. 

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, segir tímasetninguna fráleita: „Algerlega fráleidd tímasetning. Segjum NEI í ágúst, og sjáum til seinna.“

Þorsteinn Pálsson, fyrrum forsætisráðherra, segir að efasemdir Egils séu skiljanlegar:

„Þær eru réttmætt íhugunarefni. En frá mínum bæjardyrum horft er það einmitt glundroðinn og þá alveg sérstaklega óvissan sem fylgir tollastríði Bandaríkjanna sem kallar á að við tryggjum kjölfestu okkar betur. Við hefðum jafnvel átt að bregðast við fyrr.“