Fréttir

Burnham lækkar skatta á ölkrár og tónleikastaði: „Fyrir mér er þetta okkar menning“

Mynd
Burnham fékk sér einn ískaldan á Héranum í Harlow í dag. Mynd/Getty

Andy Burnham, nýi forsætisráðherra Bretland, er byrjaður á verkefni sínu um að lækka álögur á alþýðuna. Burnham tók við embættinu á mánudaginn og hét því að byrja strax á ýmsum aðgerðum til að lækka kostnað almennings í landinu.

Sjá frétt: „Við höfum ekki staðið okkur nógu vel“

Ætlar hann að afnema virðisaukaskatt af rafmagni sem á að spara meðalfjölskyldunni um átta þúsund krónur á ári. Þá ætlar hann að festa fargjald í strætisvagna í tveimur pundum, eða um 340 krónur. 

Burnham heimsótti Essex í dag og sagði við blaðamenn að hann ætli að lækka skatta um 20% á ölkrár sem Bretland er svo þekkt fyrir og tónleikastaði. Ætlar hann að fjármagna skattalækkunina með því að hækka skatta á móti á veipbúðir og veðmálastaði. 

„Við getum ekki horft eins á alla starfsemi,“ sagði hann við blaðamann Independent á Héranum, The Hare Pub, í Harlow. Benti Burnham á ölkrána sem stað sem gott á sér stað og væri í hjarta samfélagsins. „Aðrir staðir valda samfélagslegum skaða. Þannig að staðir þar sem fólk stundar veðmál geta valdið samfélaginu skaða. Það er heldur ekki mikið að sækja í veipverslanir,“ sagði Burnham. 

„Með því að breyta skattkerfinu þá getum við stutt við staði sem gera samfélaginu gott.“

Hagfræðingar eru ekki sannfærðir, telja þeir að sparnaðurinn verði rétt um tæpar 200 þúsund krónur á ári fyrir hverja krá. Þá hafa rekstaraðilar bent á að skatturinn verði sóttur í gegnum önnur gjöld, gera þurfi meira ef það eigi í alvöru að sporna við samdrættinum.

Burnham segir að það þyrfti að sporna við lokun ölkráa í landinu. „Fyrir mér er þetta okkar menning, menning verkamannastéttarinnar. Þegar krárnar loka þá koma þær ekki aftur,“ sagði hann. „Þetta er skattalækkun sem þessir staðir munu finna fyrir.“