„Þetta er ljótanið. Það er búið að útmála Þorgerði Katrínu sem lygara út af þessu,“ segir Egill Helgason fjölmiðlamaður í færslu á Facebook í kjölfar leiðréttingar Vísis á ummælum Þorgerðar Katrínar en í upphaflegri frétt var sagt í óbeinni ræðu að hún hefði rætt um undanþágur á sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins við Rob Jetten forsætisráðherra Hollands. Morgunblaðið fylgdi eftir þessari línu í frétt Vísis og fékk það staðfest frá bæði Jetten og Þorgerði Katrínu að þau hefðu aldrei rætt saman.
Í kjölfarið má segja að netheimar hafi logað, margir stigu fram og lýstu yfir að Þorgerður Katrín hefði verið að ljúga og jafnvel að um hafi verið að ræða eitthvað samsæri. Eiríkur Rögnvaldsson prófessor emeritus steig fram í gær og sagði á að líklega hafi verið um að ræða misskilning í samtali blaðamanns og Þorgerðar Katrínar.
Sjá frétt: „Engar forsendur fyrir því að saka utanríkisráðherra um ósannsögli“
Egill segir: „Þetta er merkilegt dæmi um það hvernig umræðan hefur verið leidd út í skurð og í algjöran tittlingaskít. Furðulegur andskoti að ekki sé hægt að eiga vitrænar umræður.“
Enginn að vakta ummælin?
Margir svara Agli undir færslu hans, þar á meðal alþjóðastjórnmálafræðingurinn Hjörtur J. Guðmundsson sem segir:
„Málið kom upp fyrir nokkru síðan. Hvers vegna var þetta þá ekki leiðrétt strax? Og hvaða Hollendinga ræddi hún þá við sem hún vill ekki gefa upp hverjir voru? Þegar hún segir við blaðamanninn að hún hafi rætt við Hollendinga er eðlilegt að það sé skilið sem hollenzk stjórnvöld. Einkum þar sem umfjöllungarefnið var ummæli hollenzka forsætisráðherrans. Þetta í bezta falli hið furðulegasta mál af hennar hálfu.“
Helga Arnardóttir, blaðamaður á Gímaldinu, tekur í svipaðan streng og Hjörtur:
„Auðvitað er alls ekki gott þegar ranglega er haft eftir ráðamönnum það getur hins vegar gerst í miklum hraða og amstri dagsins. Lykilklúðrið finnst mér hins vegar liggja hjá Utanríkisráðuneytinu, fjölmiðlafulltrúum, aðstoðarmönnum ráðherra og Þorgerði sjálfri. Af hverju í veröldinni er enginn að vakta rangar/réttar fréttir og ummæli ráðherra??“
Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri á Útvarpi Sögu segir að þetta hafi sett af stað upplýsingaóreiðu:
„Átti hún ekki strax að leiðrétta það sem var rangt að hennar mati. Ráðherrar hafa skyldu til þess. Hún gerir athugasemdir 12 dögum seinna. Hún sjálf setti af stað bullandi upplýsingaóreiðu.“
Erna Bjarnadóttir hagfræðingur svarar Agli á bloggi Heimssýnar í morgun:
„Þetta eru merkileg ný viðmið um pólitíska ábyrgð. Þegar rangt er haft eftir ráðherra og leiðrétting berst ekki fyrr en þrettán dögum síðar verður ráðherrann allt í einu fórnarlamb þeirra sem tóku orð hans alvarlega.“
Una Margrét Jónsdóttir hjá RÚV segir þetta einfalt:
„Þetta var augljóslega misskilningur fréttamanns og rétt hjá Vísi að leiðrétta mistökin.“
Grundvallaratriði hafi kafnað í hávaða
Sjálf segir Þorgerður Katrín í grein á Vísi í morgun að grundvallaratriði um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst hafi kafnað í hávaða: „Hér er ekki spurt hvort þjóðin eigi að ganga inn, heldur hvort við eigum að ganga til samningaviðræðna. Sú ákvörðun verður ekki tekin fyrr en þjóðin hefur séð fullbúinn samning og fengið tækifæri til að greiða atkvæði um hann sérstaklega, í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir hún.
„Þetta er grundvallaratriði sem hefur því miður kafnað í hávaðanum undanfarnar vikur. Í stað þess að ræða inntak málsins, hvað við ætlum okkur að fá út úr slíkum viðræðum og hvernig við ætlum að verja íslenska hagsmuni, hefur umræðan aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga. Sumir fjölmiðlar hafa lagt sig fram um að mála þetta ferli sem eitthvað annað en það er. Ég ætla ekki að eyða dýrmætum tíma kjósenda í að eltast við hvert einasta slíkt skot. Þjóðin á betra skilið en þras. Hún á skilið staðreyndir.“