Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus, telur að gagnrýni á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra megi rekja til mistaka í því sem haft var eftir henni.
Þorgerður Katrín hefur verið harðlega gagnrýnd eftir að hún sagði við Morgunblaðið í dag að hún hefði aldrei rætt við Rob Jetten forsætisráðherra Hollands um undanþágur frá sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.
Pólitískar afleiðingar, lygasögur og landráð
Margir hafa stigið fram, þar á meðal Páll Vilhjálmsson bloggari sem skrifar: „Þorgerður Katrín er uppvís að ósannindum í málefni sem varðar grundvallarhagsmuni Íslands. Hún hefur margsinnis í umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna haft í frammi þau orð að varast beri ósannindi og upplýsingaóreiðu. Þegar Þorgerður Katrín er sjálf er staðin að verki, að leggja forsætisráðherra Hollands orð í munn, hlýtur það að hafa pólitískar afleiðingar,“ segir hann.
Þá sagði Vigdís Hauksdóttir, fyrrum þingmaður og borgarfulltrúi Miðflokksins:
„Þetta er búið hjá henni - við getum ekki haft utanríkisráðherra sem lýgur blákalt að okkur og býr til lygasögur og ímynduð samtöl við toppana í ESB - henni virðist sama um orðspor Íslands,“ sagði Vigdís í færslu á Facebook.
Guðmundur Franklín Jónsson, fyrrum forsetaframbjóðandi, gekk enn lengra:
„Hvað er eiginlega í gangi, þetta eru greinilega LANDRÁÐ og rannsókn verður að fara fram STRAX á vinnubrögðum ráðherra.“
Óbein ræða í viðtali
Eiríkur segir í færslu á Facebook að hann telji þetta stafa af misskilningi.
„Evrópusambandsandstæðingar leggja um þessar mundir ofuráherslu á þá fullyrðingu að utanríkisráðherra hafi logið að þjóðinni um samtöl sín við forsætisráðherra Hollands. Allt byggist þetta á viðtali við ráðherrann í Vísi níunda júlí þar sem haft er eftir henni: „Þetta segir utanríkisráðherra sem segir orð forsætisráðherra Hollands um að Ísland verði að gangast undir sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins til að öðlast aðild ekki í samræmi við samtöl þeirra á milli“ og einnig „Þorgerður Katrín utanríkisráðherra segir […] orð forsætisráðherra Hollands ekki í samræmi við hennar samtöl við hann“.
Eiríkur bendir á að þetta hafi verið óbein ræða, endursögn blaðamanns á orðum ráðherra.
Þorgerður Katrín sagði: „Þetta er ekki í samræmi við mín samtöl, meðal annars við Hollendinga og mína kollega.“
Síðar í sömu frétt tilgreinir hún þá sem hún hefur rætt við, Rob Jetten er ekki í þeim hópi. „Þetta hefur komið fram hjá fiskveiðistjóra Evrópusambandsins og í rauninni líka við mína kollega hvort sem það er frá Þýskalandi, Spáni, Írlandi, Slóvakíu og ég get nefnt þá miklu, miklu fleiri.“
Engar forsendur til að saka ráðherra um ósannsögli
Eiríkur segir að það sé ekki fullt samræmi milli endursagnarinnar og þess sem var haft eftir Þorgerði Katrínu.
„Í því sem haft er beint eftir utanríkisráðherra er nefnilega ekki minnst sérstaklega á forsætisráðherra Hollands, heldur eingöngu „Hollendinga og mína kollega“. Forsætisráðherra Hollands er aðeins nefndur í endursögn Vísis og því er full ástæða til að spyrja hvort það stafi af túlkun eða (mis)skilningi blaðamanns að segja að utanríkisráðherra hafi vísað til hans,“ segir Eiríkur.
„Slíkur misskilningur væri í sjálfu sér skiljanlegur þar sem orð forsætisráðherra Hollands voru ástæða fyrir viðtalinu við utanríkisráðherra. Hvað sem því líður eru engar forsendur fyrir því að saka utanríkisráðherra um ósannsögli á grundvelli umrædds viðtals.“