Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari kvennaliðs Aþenu í körfubolta, tilkynnir að liðið verði dregið úr Bónusdeildinni. Skýtur hann föstum skotum á nýjan meirihluta Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Viðreisnar í Reykjavík.
„Það er með mikilli sorg sem ég upplýsi okkar ótrúlega stuðningsfólk og verndarengla um að Aþena neyðist til að draga lið sitt úr Bónusdeild kvenna. Liðið tapaði aðeins einum leik í 1. deild á síðasta tímabili og vann sér sæti beint í úrvalsdeild,“ segir Brynjar Karl í færslu á samfélagsmiðlum í dag. „Ég treysti að þetta verði eina skrefið í átt að niðurlagningu starfsemi Aþenu það sem eftir lifir sumars. Ákvörðunina verður að taka núna, af virðingu fyrir Bónusdeildinni, svo hún fái tækifæri til að fylla skarðið í tæka tíð.“
Reykfyllt bakherbergi
Brynjar Karl segir ástæðuna þá að borgin hafi ekki tekist á við þær áskoranir sem fylgja 111 Reykjavík.
„Því hefur verið mætt með grófri valdníðslu sem hefur ekki farið fram hjá vinum mínum á Facebook. Við höfum náð að berja það af okkur, en eftir lifir spilling í reykfylltum bakherbergjum. Nú ríkir veruleg skekkja í samstarfinu við Reykjavíkurborg. Við höfum ítrekað óskað eftir endurnýjun rekstrarsamningsins, sem var tekinn af okkur sem hluti af valdníðslunni, og aðstöðu í formi fundar- og kennslurýmis,“ segir hann.
Sjá einnig:
Samningur Aþenu við borgina í höfn en tilfinningar Brynjars Karls blendnar
Nefnir hann að hver einasta króna til félagsins, það er sem fara í kynningarstarf, laun, tól og tæki, komi frá einkaaðilum. Ómæld vinna hafi verið lögð í uppbyggingu félagsins og í að halda utan um unga fólkið. Óeðlilegt sé að borgin endurnýi ekki samninginn. Hann sé nauðsynlegur til að tryggja tilverurétt Aþenu og koma í veg fyrir geðþóttaákvarðanir embættismanna og borgarfulltrúa um framtíð félagsins.
Innantóm kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins
„Í allri hreinskilni sé ég ekki hvernig nokkur aðili á að ná árangri í hverfinu við þessar aðstæður. Nýr meirihluti hefur vitað af stöðunni í fimm vikur, það er að óvissan hindraði Aþenu í að semja við leikmenn og þjálfara og setti þar með afreksstarfið í uppnám. Hinn nýji meirihluti hefur ekki treyst sér til að leysa málið STRAX,“ segir Brynjar og vísar óbeint í slagorð Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningar. Það er að flokkurinn ætlaði sér að leysa málin strax.
„Okkur þykir furðulegt að nýjum meirihluta finnist málið ekki meira áríðandi og leysi það STRAX, enda hefur það velkst lengi um hjá borginni og okkar mál voru kynnt ítarlega í kosningabaráttunni. Lausnin snýst ekki um fjármagn heldur velvilja og viðurkenningu á starfinu. Þar sem ekki er ágreiningur um fjárhæðir hefði átt að vera hægt að leysa málið STRAX,“ segir Brynjar Karl. „Finna þarf lausn fyrir um 120 stelpur í 111 Reykjavík sem Aþenu hefur tekist að ná til, virkja og halda utan um. Þetta eru börn og ungmenni sem þurfa stöðugleika, traust og öruggt umhverfi.“