Gjöf Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á á leiðtogafundi NATO í vikunni hefur vakið mikla athygli og undrun en um er að ræða skammbyssu áletruð með nafni Kristrúnar. Allir þjóðarleiðtogarnir fengu slíka gjöf en Kristrún lét sendiráð Tyrklands í Osló fá sína.
Sigurður Már Jónsson, fyrrum upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, útskýrir sitt sjónarhorn á gjöfina í færslu á Facebook:
„Viðbrögðin eru athyglisverð en sumir virðast hissa á gjöfinni og telja jafnvel að það sé óviðeigandi að gefa slíka gjöf. Nú er það svo að Nató er hernaðarbandalag sem gengur út á sameiginlega ábyrgð á vörnum landanna. Við Íslendingar erum vopnlaus þjóð í þeim skilningi að við erum ekki með her. Ef eitthvað bjátar á þá treystum við á að bandalagsþjóðir okkar komi til varnar en vopnuðum átökum fylgir óhjákvæmilega mannfall, einhver þarf að úthella blóði til að við hin séum örugg.“
Hann segir byssuna vera harða áminningu:
„Því má segja að byssa Erdogans sé hörð áminning um það út á hvað Nató gengur, Erdogan er hörkutól sjálfur og undir hans stjórn hafa verið framdir hroðalegir verknaðir, fólk skotið, pyntað og það jafnvel horfið. Samskiptin við aðskilnaðarhreyfingu Kúrda jafngilda hálfgerðri borgarastyrjöld. Á hverju ári deyja fjölmargir í þessum átökum,“ segir hann.
„Erdogan er líklega sá leiðtogi Nató-ríkis sem helst gæti goldið fyrir valdaskipti með lífi sínu. Fyrir hann er þátttaka í stjórnmálum dauðans alvara; byssan er því óhjákvæmilegur meðreiðarsveinn hans í pólitík, heima sem erlendis.“