Fréttir

Segir markaðsöflin hafa landsmenn að fíflum með Lite-bjórum

Mynd
Mynd: Unsplash.com

Næringarfræðingurinn Elísabet Reynisdóttir segir markaðsöflin hafa Íslendinga að fíflum með sölu á Lite-bjórum. Þessir bjórar séu ekki hollari en aðrir þar sem fólk er gjarnt á að drekka meira af honum en tilefni er til sökum trúarinnar á að þarna sé einhvers konar hollusta á ferðinni. Þetta kom fram í kvöldfréttum Sýnar þar sem fjallað var um Lite-æðið sem hefur gripið Íslendinga.

Elísabet segir að hollasta leiðin til að drekka bjór sé að drekka hreinlega minna af honum. Það sé þó ekki furða að Lite sé freistandi í augum landsmanna þar sem Íslendingar þykja nokkuð þungir í alþjóðlegum samanburði. Við slíkar aðstæður skapist eftirspurn eftir neysluvörum á borð við sykurlaust gos eða léttari bjóra. Ólíkt gosdrykkjunum séu hitaeiningar ekki það eina sem þarf að óttast við bjórinn. Um áfengi er að ræða sem hefur áhrif á lifrina og þessi áhrif eru enn til staðar þó að bjórinn heiti Lite.

Það sé þó tálsýn að halda að viðbótin lite við nafnið á bjórnum sé til þess fallin að hlífa landsmönnum frá neikvæðum áhrifum áfengisneyslunnar. Besta leiðin til að draga úr slíkum áhrifum sé að draga almennt úr áfengisneyslu.

Kvöldfréttir Sýnar fjölluðu einnig um ólöglega smásölu á Íslandi sem mun nú vera orðin svo gríðarleg að lögreglan geti í raun lítið gert. Komið sé að löggjafanum að kveða af eða á um hvort slík sala verði heimiluð eða stöðvuð.