Minnst tólf hafa látist af völdum skógarelda á Spáni síðustu daga. Meira en tuttugu er saknað. Rúmlega 150 slökkviliðsmenn hafa verið kallaðir út í þorpinu Bedar. Mikill þurrkur er á svæðinu en þar er hitinn í kringum 40 gráður líkt og víða um Evrópu.
Breska dagblaðið Mirror hefur eftir embættismönnum að fjórir ferðamenn, líklega frá Bretlandi, hafi fundist látnir í brenndum bíl í Los Gallardos.
Staðan er sú versta í áratugi en síðast þegar svo margir létust af völdum skógarelda á Spáni var við Costa Brava árið 1979 þegar 21 lét lífið.
Minnst sjö létust eftir að hafa ekki yfirgefið heimili sitt. Antonio Sanz heilbrigðisráðherra hefur beðið alla á svæðinu að fylgja fyrirmælum almannavarna. „Ég bið alla um að sýna ábyrgð. Þegar það er neyðarástand þá eru fyrirmæli yfirvalda ekki tillögur, fyrirmælin eru gefin til að bjarga lífum. Ef ykkur er sagt að halda kyrru fyrir eða fara, gerið það strax og fylgið leiðbeiningum.“
Hér má sjá myndband frá Los Gallardos:
La que se está liando en #Almería. #IFLosGallardos
🕢 21:48
📹Enviado por WhatsApp. pic.twitter.com/8LK3MZht3R— Óscar. (@OscarBForestal) July 9, 2026
Francisco Miguel Reyes, borgarstjóri Los Gallardos í Andalúsíu, segir að svæðið minni á átakasvæði. „Það er eins og það hafi sprenga fallið. Eldurinn er stjórnlaus og vindurinn er ekki að hjálpa til. Við bindum vonir við að það takist að ná tökum á eldinum í dag,“ sagði Reyes. „Það hafa orðið miklar skemmdir á innviðum, það er hægt að laga, líf hins vegar, það er annað mál.“