Fréttir

Mætti ekki fyrir dóm þrátt fyrir að hafa valdið alvarlegu umferðarslysi á Suðurlandsvegi

Mynd

Kona hefur verið dæmd í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamstjón af gáleysi, en konan ölli alvarlegu umferðarslysi á Suðurlandsvegi í desember árið 2024 þegar hún ók yfir á rangan vegarhelming vegna svefnleysis.

Slysið átti sér stað í Rangárþingi eystra þann 7. desember árið 2024. Samkvæmt ákæru var konan óhæf til að stjórna bifreiðinni með öruggum hætti vegna svefnleysis en afleiðingin var sú að hún ók yfir á rangan vegarhelming og hafnaði framan á bíl sem ók á móti henni. Ökumaður þeirrar bifreiðar hlaut meðal annars brot á lærlegg, olnboga, hálsliðum, lendarlið og viðbeini. Eins varð hann fyrir áverkum á heila og lifur, hlaut innvortis blæðingu og loftbrjóst.

Farþegi bifreiðarinnar slasaðist einnig mjög alvarlega. Hún hlaut brot á viðbeini, bringubeini, hrygg og rifjum, auk loftbrjósts og áverka á lifur, ristli og smágirni.

Þrátt fyrir alvarleika málsins mætti ákærða ekki fyrir dóm þegar málið var þingfest og hafði ekki boðað forföll. Málið var því tekið til dóms sem svokallað fjarvistarmál.

Dómari taldi háttsemi konunnar sannaða á grundvelli rannsóknargagna og dæmdi hana í 60 daga fangelsi sem er skilorðsbundið til tveggja ára. Eins þarf hún að greiða brotaþolum sínum miskabætur og fær hvor þeirra 2 milljónir króna. Auk miskabótanna var konunni gert að greiða sakarkostnað í málinu, tæpar 2,7 milljónir króna.

Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands í gær, 9. júlí.