Kona á fertugsaldri giftist fjórtán mönnum til þess að fjármagna spilafíkn sína í syndabælinu Las Vegas. Nýtti hún sér slaka giftingarlöggjöf fylkisins og svindlaði út úr þeim peninga.
Breska blaðið The Independent greinir frá þessu.
Konan, hin 33 ára Jiaying Chen, hefur játað að hafa gifst fjórtán mönnum til þess að svindla út úr þeim peninga. Fékk hún frá þeim samanlagt 300 þúsund dollara eða tæplega 38 milljónir króna. Þeir fjármunir fóru hins vegar allir rakleiðis í fjárhættuspil.
Konan kynntist mönnunum á netinu og heillaði þá upp úr skónum. Vegna slakrar giftingalöggjafar í Las Vegas var hún fljót að giftast hverjum og einum þeirra og virtist engu máli skipta að hún var þegar gift. Stóð þetta yfir árum saman.
Sagðist hún þurfa peninga til að senda veikum fjölskyldumeðlimum í Kína eða til að safna fyrir húsi. Þegar mennirnir höfðu sent henni peninga var hún fljót að slíta öllu sambandi við þá og var ekkert hirt um skilnað. Sumir þeirra reyndu hins vegar að skilja Chen.
Chen var loks handtekin í síðustu viku. Hefur hún játað fjölveri og fjársvik og hefur gert samning við saksóknara um að krafist verði vægri refsingar. Refsing verður ákveðin þann 20. ágúst.