Fréttir

Inga svarar kjaftasögunum um áfengismeðferð – „Fólk lýgur meira en það mígur stundum“

Mynd
Inga fékk persónulega spurningu frá blaðamanni Sýnar sem kom henni í opna skjöldu. Skjáskot/Facebook

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hafnar því að hafa verið í áfengismeðferð. Hún var spurð að þessu eftir ríkisstjórnarfund í dag.

Í myndbandsfærslu á samfélagsmiðlum í dag segir Inga frá sinni hlið. Hún hafi verið spurð þessari persónulegu spurningu eftir ríkisstjórnarfund í dag af blaðamanni Sýnar. Það er hvort hún hafi verið að koma úr áfengismeðferð.

„Þá segi ég nú eins og einn góður veðurfræðingur sagði á dögunum þegar fréttirnar bárust hér út um allt land að hann væri látinn. Þegar hann mætti í viðtal sagði hann: Fréttirnar af dauða mínum eru stórlega ýktar. Það verð ég líka að segja varðandi fréttir af minni drykkju, fréttir af minni meðferð er meira en stórlega ýkt. Ég hef aldrei á ævinni farið í meðferð og notið þeirra sérréttinda sem felast í því að fara í þá innri endurskoðun á sjálfum sér eins og þar fer fram. Það dásamlega starf sem þar er unnið,“ segir Inga. „Ég er svo blessunarlega heppin að hafa ekki þurft að glíma við þennan erfiða sjúkdóm sem alkóhólismi er.“

Segist hún ekki vita hverjum detti það í huga að rúlla svona kjaftasögum af stað.

„Þetta er eins og með annað. Fólk lýgur meira en það mígur stundum,“ segir hún. „Inga Sæland. Hún var með flensu á dögunum, virkilega slæma flensu og þurfti oftar en einu sinni að fara til læknis út af því. Ég var meira og minna lasin í ríflega tvær vikur. En halló, ég skal bara lofa því að segja ykkur það þegar bakkus hefur náð þannig tökum á mér að ég þurfi að leita aðstoðar.“

Ráðherrar hafi ekki mörg tækifæri til að lyfta glasi. Þeir þurfi að vera fókusaðir og með höfuðið vel skrúfað á. Þetta sé ábyrgðarhluti og hún taki hlutverk sitt alvarlega.