Fréttir

Framsóknarhúsið orðið sýnagóga – Mikil öryggisgæsla á staðnum

Mynd
Miðstöðin var opnuð með pompi og prakt. Mynd/Facebook

Framsóknarhúsið, við Hverfisgötu 33 í Reykjavík, er orðið að miðstöð gyðinga á Íslandi. Húsið inniheldur meðal annars sýnagógu, sem er bæna og samkomuhús í gyðingdómi.

Greint er frá þessu á gyðinglega miðlinum Chabad News.

„Við dreymdum um þessa stund árum saman,“ er haft eftir Avraham Feldman, rabbína á Íslandi.

325 milljónir króna

Sumarið 2024 festi félagið LG50 sem Feldman fer fyrr kaup á húsinu, sem var byggt árið 1965 og hýsti Framsóknarflokkinn árum saman en síðan skemmtistaðinn Miami. Félag Feldman keypti báðar hæðirnar, og kaupverðið var samanlagt 325 milljónir króna.

Þann 7. júlí opnaði samfélag gyðinga húsið eftir innréttingar. Kemur fram að í húsinu sé sýnagóga, málstofusalur fyrir allt að 80 manns, samfélagseldhús, ungmennamiðstöð, trúarlegt bað, bókasafn og öryggismiðstöð.

Gyðingar hafa verið á Íslandi frá árinu 1906 en fyrsti söfnuðurinn var stofnaður árið 1940. Í dag telur samfélag gyðinga á Íslandi á þriðja hundrað manns.

Þráðu samkunduhús

Feldman, sem er Bandaríkjamaður, flutti hingað ásamt sænskri eiginkonu sinni, árið 2018 og var flutningur þeirra hópfjármagnaður. Sagt er að kaupin á Framsóknarhúsinu hafi verið fjármögnuð með framlögum en aðstaðan er umbylting á aðstöðu gyðinga hér á landi.

„Gyðingar hér þráðu samkunduhús, rabbína, einhvers konar samfélag,“ er haft eftir Feldman. „Það hefur verið ótrúlegt að geta fyllt þá þörf.“

En fram að þessu hafa gyðingar ekki haft fasta aðstöðu. Þeir hafa verið í ýmsum leiguhúsum en einnig um nokkurt skeið komið saman í kjallara Hallgrímskirkju. Þá útvegaði bandaríska herstöðin á Keflavíkurflugvelli gyðinglega vígslumenn til ýmissa athafna þangað til hún lokaði árið 2006. Þangað til nú var Reykjavík eina höfuðborgin í Evrópu sem var ekki með fastan rabbína, sýnagógu og aðstöðu fyrir gyðinga.

Mikil öryggisgæsla

Þetta hefur breyst hratt á undanförnum árum. Því fyrir utan komu Feldman þá fengu gyðingar á Íslandi sína fyrstu torah-ritningarrullu, fjármagnaða af svissneskum kaupsýslumanni, árið 2020. Ári seinna var samfélag gyðinga á Íslandi skráð sem trúfélag og gátu gyðingar því beint skattfé sínu til safnaðarins.

Kemur fram að öryggisgæsla verður mikil á staðnum. Aðeins skráðir meðlimir safnaðarins og fólk sem pantar tíma fyrirfram fær aðgang að húsinu. En sýnagógur hafa verið vinsæl skotmörk hjá hryðjuverkamönnum, bæði jíhadistum og öfgahægri mönnum.