Fréttir

„Dag eftir dag reynir Morgunblaðið að blekkja þjóðina“

Mynd
Haukur Arnþórsson Mynd-Sósíalistaflokkur Íslands

Stjórnsýslufræðingurinn Haukur Arnþórsson segir Morgunblaðið blekkja þjóðina með fréttum um afstöðu evrópskra stjórnmálamanna og annarra um mögulegar undanþágur Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Ekkert fái því breytt að fulltrúar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins hafi sagt það beinum orðum að undanþágur séu á borðinu í viðræðunum. Þetta kemur fram á Facebook.

Haukur skrifar:

„Dag eftir dag reynir Morgunblaðið að blekkja þjóðina með fréttum um afstöðu evrópskra stjórnmálamanna, hagsmunagæslumanna og jafnvel hreinna kjördæmapotara til undanþága frá sjávarútvegsstefnu ESB. Þetta eru blekkingar af því að þessi viðtöl blaðsins koma málinu ekki við – þessir viðmælendur hafa litla og oftast enga aðkomu að aðildarsamningum. Gætum að.“

Vísar Haukur þar til fréttar Morgunblaðsins um orð forsætisráðherra Hollands sem sagði Ísland verða að gangast undir sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins til að öðlast aðild. Um var að ræða svar forsætisráðherrans, Rob Jetten, við fyrirspurn í neðri deild hollenska þingsins í júní en Jetten var spurður hvort það væri ekki afstaða hollensku ríkisstjórnarinnar að sameiginlega fiskveiðistefnan stæði óhögguð og að ríkjum sem vildu fulla aðild að ESB yrði gert að undirgangast hana. Svarið var stutt, en Jetten sagði: Rétt, já.

Haukur bendir á að Ísland sé ekki með það til skoðunar að fara í aðildarviðræður við Holland heldur framkvæmdastjórn ESB. Aðildarríki sambandsins muni fá samninginn til staðfestingar þegar hann er frágenginn. Þá kemur í þeirra hlutverk að samþykkja hann eða synja en ekki að breyta ákvæðum hans.

„Hvað sem viðmælendur Mbl. vilja. Þannig verður forsætisráðherra Hollands stillt upp við vegg: Framkvæmdastjórnin vill að ESB teygi áhrif sín til Norðursins og hann verður að samþykkja það eða vinna ella gegn hagsmunum sambandsins.

Fulltrúar framkvæmdastjórnarinnar hafa sagt það beinum orðum (m.a. á síðum Mbl.) að þeir muni veita Íslendingum undanþágur hvað varðar sjávarútvegsstefnuna og skilji að aðgangur ESB að Norðrinu verði einvörðungu keyptur því verði. Þá á framkvæmdastjórnin við Noreg og Ísland. Heimildir um þessa afstöðu má finna víða.“

Haukur bendir svo eins á að varla sé þessi málsmeðferð Evrópusambandsins ólýðræðisleg í huga Sjálfstæðismanna enda hafi ráðherrar flokksins í sumum tilvikum gert samninga án þess að bera þá undir Alþingi eins og þegar Guðlaugur Þór Þórðarson gerði viðbót við varnarsamning Íslands við Bandaríkin árið 2017.