Sigfús Aðalsteinsson, forsvarsmaður Ísland þvert á flokka, hefur boðað til samstöðufundar með skemmdarvarginum sem málaði yfir hinseginfánann á tröppunum við Grafarvogskirkju. Fram kemur í tilkynningu frá Sigfúsi að þeir sem vilji taka þátt geti mætt með íslenskan fána kl. 11 á sunnudaginn.
Málið hefur vakið mikla athygli og hefur Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, gefið það út að til standi að mála regnbogafánann aftur á tröppurnar á næstu dögum. Skemmdarverkið hefur verið tilkynnt til lögreglu sem rannsakar hvort um hatursglæp sé að ræða. Talið er að tveir hafi verið að verki. Sá sem kveðst bera ábyrgð á verknaðinum hefur stigið fram nafnlaust og útskýrt ástæðurnar.
Sjá frétt: Stígur fram vegna hatursglæps við Grafarvogskirkju
Sjá frétt: Segja skemmdarverkið stilla fánunum upp sem andstæðum
Sigfús er ekki á sömu blaðsíðu og biskup, atvinnuvegaráðherra og fleiri sem hafa gagnrýnt verknaðinn.
„Held að okkur sé öllum ofboðið hvernig lögregla, kirkjan, ráðherrar og Samtökin 78 hafa ausið hatursáróðri um fánaveifumálun á kirkjutröppur í Grafarvogskirkju. Málið er komið langt út fyrir alla eðlilega skynsemi,“ segir hann. Vill hann að það sé fjölmennt við kirkjutröppurnar til að sýna samstöðu, hefur hann fengið töluverðar undirtektir meðal sinna fylgjanda. Samkvæmt vef Grafarvogskirkju fer fram sumarmessa næstkomandi sunnudag við grillskýlið í Gufunesbæ þegar samstöðufundurinn er boðaður.
Sigfús heldur áfram: „Allir mæta með fána og við stöndum og sitjum við þessar tröppur sem ráðamenn eru að fara á límingunum yfir og sýnum íslenska fánanum þá virðingu að hafa hann með, í hvaða formi sem er. Myndir þú mæta og sýna listamanninum stuðning og styrk?“