Fréttir

Saumaði saman varirnar á herbergisfélaga sínum - „Vinsamlegast hjálpið mér“

Mynd
Konan gat ekki talað því varirnar á henni voru saumaðar saman. Mynd/Getty

Japönsk kona um fimmtugt var handtekin fyrir að sauma saman varirnar á herbergisfélaga sínum. Herbergisfélaginn gat laumað sér út og beðið um aðstoð en var með andlitsgrímu.

Eins og segir í frétt sjónvarpsstöðvarinnar TV Ashai hefur 49 ára kona, Masae Sakurai, verið handtekin í borginni Koga, norðan við höfuðborgina Tokyo, fyrir að sauma saman varir herbergisfélaga síns, 42 ára gamallar konu.

Eins og segir í fréttinni hafði brotaþoli búið hjá Sakurai síðan í apríl árið 2025. En Sakurai hafði lengi leyft heimilislausum stúlkum og konum að búa hjá sér. En eins og þetta mál sýnir var sambandið ekki endilega venjulegt, í rauninni mjög sjúkt, því að Sakurai leyfði hinni yngri konu ekki að fara út.

„Ég var hrædd við Sakurai. Ég gat ekki sloppið strax,“ sagði yngri konan.

Með miða og grímu

Var um hreina nauðung að ræða og vildi Sakurai hafa algera stjórn á henni. Þann 29. júní síðastliðinn saumaði hún saman á henni varirnar með nál og þræði til þess að hún gæti ekki talað.

Það var stráið sem fyllti mælinn. Hin yngri kona varð að reyna að flýja og það tókst henni degi seinna þegar Sakurai brá sér af heimilinu. Setti hún á sig hvíta andlitsgrímu og flúði yfir í nálæga verslun. Þar sem hún gat ekki talað rétti hún afgreiðslumanneskjunni bréfmiða sem á stóð: „Vinsamlegast hjálpið mér.“

Hringdi afgreiðslumanneskjan samstundis í lögregluna. Seinna um daginn var Sakurai handtekin.

Rannsókn stendur yfir

Lögregla hefur nú rætt við fleiri sem hafa dvalið á heimili Sakurai. Hefur þar dvalið fólk á ýmsum aldri, allt niður í menntaskólakrakka sem hafa farið að heiman og þora ekki heim til foreldra sinna.

Vitað er að Sakurai hafi hjálpað mörgum herbergisfélögum sínum, til að mynda að finna atvinnu. Óvíst er hvort að hún hafi hagað sér jafn óeðlilega gagnvart öðrum en konunni sem hún saumaði saman varirnar á. Einnig er verið að rannsaka hvers vegna hún gerði þetta. En að minnsta kosti þykir líklegt að Sakurai verði ákærð fyrir líkamsárás.