Logn Blómdal hjá Rauðu regnhlífinni segir það hræðilegt ef refsing fyrir vændiskaup verði þyngd.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hyggst endurskoða refsirammann í tengslum við vændiskaup, þar á meðal að afnema sektir, í þeim tilgangi að draga úr eftirspurn eftir vændi, stemma stigu við mansali í kynferðislegum tilgangi og sporna þannig við skipulagðri glæpastarfsemi. Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um hvaða leið verði fyrir valinu en að horft verði til löggjafar annarra Norðurlanda. Málið er komið í samráðsgátt stjórnvalda.
„Okkur finnst þetta hræðilegt,“ sagði Logn Blómdal hjá Rauðu regnhlífinni í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Þetta er hræðileg þróun því að aukin glæpavæðing býr til aukinn vítahring ofbeldis og kann að festa fólk í neyð.“
Samkvæmt lýsingu er Rauða regnhlífin samtök aktivista sem berjast fyrir öryggi og réttindum fólks í kynlífsvinnu á Íslandi.
Alls eru um 40 manns tengd samtökunum að sögn Logns. „Fólk heldur kannski að vændi eða kynlífsvinna á Íslandi sé erlent vandamál en meirihluti af þeim sem koma til okkar eru Íslendingar og við vitum af talsverðum fjölda Íslendinga sem eru að selja vændi eða kynlíf,“ segir hán.
Kúnnar séu þeir sem tilkynni mansal
Logn segir að öll glæpavæðing á vændi bitni á þeim sem standa verst, þar á meðal þolendum mansals. „Það gerir allt svo miklu erfiðara, erfiðara að greina frá hver er mansalsþolandi og hver ekki,“ segir Logn. „Kúnnar eru stærsti hlutinn af þeim sem að tilkynna mansalsaðstæður til lögreglu. Sem er ekki hægt hér því þú ert glæpavæddur.“
Með því að glæpavæða kúnnann þá geti þeir orðið hættulegri. „Frekar en kurteisi gæinn sem bara borgar og fer.“
Heimur vændis mun vera tvískiptur, annars vegar þeir sem stunda það af fúsum og frjálsum vilja, og hins vegar þeir sem séu neyddir til þess. Fólk geti þó flakkað á milli þessara hópa. „Þú getur byrjað sem kynlífsverkamanneskja en endað sem þolandi vændis. Og öfugt. Það eru líka þolendur vændis sem tala um sig sem kynlífsverkafólk,“ segir Logn.
Annmarkar á sænsku leiðinni
Logn gagnrýnir að samtökin fái ekki sæti við borðið þegar teknar séu ákvarðanir sem snúa að vændi á Íslandi. „Við viljum sæti við borðið því þetta tengist lífum okkar sérstaklega og eitthvað sem við höfum sérfræðiþekkingu í.“
Logn segir ýmsa annmarka á sænsku leiðinni svokölluðu, það sé enn ólöglegt að leigja húsnæði til kynlífsverkafólks og þá megi það ekki auglýsa þjónustu sína.
Samtökin eru þó ekki hlynnt beinni lögleiðingu á vændi líkt og t.d. í Þýskalandi. „Lögleiðing þýðir bara lögleiðingu fyrir suma, ekki alla. Þú mátt ekki vinna sjálfstætt. Þú verður að vinna undir yfirmanni þá geta myndast aðstæður, fólk sem er að reka strippklúbba eða vændishús eru ekki endilega með hagsmuni seljendanna í huga, þau vilja bara græða,“ segir Logn.
„Við styðjum fulla afglæpavæðingu og þá er ofbeldi og mansal enn ólöglegt. Við viljum að mansal sé ólöglegt, það er hryllilegt ofbeldi.“
Lögreglan segi: „Við hverju bjóstu?“
Það sem Logn leggur til að afglæpavæðing fyrir einyrkja, þar sem þeir fá þá vernd gegn ofbeldi og mansali. „Við viljum getað leitað okkar réttar því að núna, undir sænsku leiðinni, hefur lögregla og yfirvöld mestan áhuga á að ná kúnnum fyrir kaup. Þau hafa ekki, eða virðast ekki hafa mikinn áhuga, á því að rannsaka ofbeldismál. Þú ert kannski búinn að safna kjark, ferð til lögreglunnar og lögreglan segir: „Við hverju bjóstu?“.“
Logn segir að í löndum þar sem vændi hefur verið afglæpavætt þá séu dæmi um að ofbeldismál fari fyrir dóm. „Á Íslandi er mjög sjaldgæft að ofbeldi tengt vændi eða kynlífsvinnu komi fyrir framan dómara því að lögreglan telur að það þurfi ekki að rannsaka það.“