Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, er ekki sáttur eftir ummæli Júlíusar Viggós Ólafssonar, formanns Sambands ungra Sjálfstæðismanna, í Spursmálum þar sem rætt var um mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu.
Júlíus Viggó sagði að ef þjóðin myndi kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni hæfist ferli sem fæli í sér aðlögun, ekki aðildarviðræður.
„Við erum ekki að kjósa um það hvort við séum bara að fara að skoða,“ sagði Júlíus Viggó. „Það sem er verið að kjósa um er að byrja aðildarviðræðuferlið og því fylgir aðlögun.“
Búið að útskýra þetta endalaust
Björn Leví er harðorður og segir í færslu á Facebook: „Getur þetta fólk ekki hætt að ljúga? Eða ef það meinar eitthvað annað, að segja það þá frekar en "hefja eigi aðlögun að sambandinu"?“
Þetta er ekki fyrsta færsla Björns um þetta málefni.
„Ég er kannski dálítið þver með þetta en fólk sem lýgur svona svakalega að almenningi á _aldrei_ heima í stjórnmálum. Það er ekkert pláss fyrir fólk sem gerir svona viljandi,“ segir hann. „Og já, ég segi viljandi af því að það er búið að útskýra það endalaust oft að kosning um aðildarviðræður, og aðildarviðræðurnar sjálfar, mun ekki hafa í sér neina "aðlögun" að sambandinu fyrir eiginlegar kosningar um aðild.“
Minnt á lygar alla sína pólitísku ævi
Björn Leví segir að umsóknarríki þurfi að uppfylla Kaupmannahafnarskilyrðin sem Ísland uppfylli nú þegar.
„Umsóknarríki fá aðgang að alls konar aðlögunarstyrkjum. Það eru helstu rökin sem ég sé frá nei-urum varðandi þetta - "til hvers eru þá aðlögunarstyrkir",“ segir hann.
„Við fengum svona styrki síðast þegar við vorum í aðildarviðræðum og hættum að fá þá þegar Gunnar Bragi sendi bréf. Ég man ekki eftir að nokkur hafi verið ósáttur við að fá aðgang að þessum styrkjum. Þeir breyta engum lögum eða reglum hjá okkur allavega.“
Björn Leví tekur fram að hann sé ekki á móti því að fólk sé andsnúið aðild að Evrópusambandinu. „Endilega verið á móti aðildarviðræðum eða jafnvel aðild. En vinsamlegast gerið það á málefnalegan hátt í staðinn fyrir að ljúga að fólki. Og ef þið gerið það og það kemst upp - sjáið ykkur sóma í að sjá það og viðurkenna lygina eða einfaldlega hættið í pólitík. Því þið verðið minnt á lygarnar alla ykkar pólitísku ævi ef þið viðurkennið hana ekki.“